Beint í efni

32. fundur

10.09.2013
Umhverfisnefnd Garðabæjar

32. fundur

Umhverfisnefnd Garðabæjar

í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg

10.09.2013

Kl. 17:00 - 19:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Júlía Guðrún Ingvarsdóttir - formaður
  • Þorsteinn Þorsteinsson - aðalmaður
  • Jón Bjarni Þorsteinsson - aðalmaður
  • Sigríður Erla Jónsdóttir - aðalmaður
  • Elías Jakob Bjarnason - áheyrnarfulltrúi

Ritari

  • Erla Bil Bjarnardóttir

Dagskrá

Málsnúmer 1307600

01

Friðlýsing Brennisteinsfjalla

Erindi Umhverfisstofnunar dags 16. júli 2013 vísað frá bæjarráði 23. júlí til umfjöllunar í umhverfisnefnd og skipulagsnefnd.

Umhverfisnefnd gerir engar athugasemdir við erindið.

Málsnúmer 1301531

02

Átaksverkefni skógræktarhópa 2013

Skýrsla um Atvinnuátak Garðabæjar 2013, lögð fram.

Nefndin þakkar afar vel unna skýrslu, sem er greinargóð um starfsemi sumarstarfa þar sem fatlaðir fegnu tækifæri til sumarvinnu og frístundaúrræðis í fyrsta sinn í Garðabæ.

Málsnúmer 1309193

03

Starfskýrsla Skógræktarfélags Garðabæjar

Lögð fram Starfskýrsla Skógræktarfélags Garðabæjar tímabilið 1. september 2012 - 31. ágúst 2013.

Samkvæmt samstarfsamningi milli Garðabæjar og skógræktarfélagsins ber félaginu að skila inn starfskýrslu árlega.Nefndin þakkar mjög góða skýrslu félagsins.Skógræktarfélaginu er hrósað fyrir útgáfu útivistarkorts sem kom út í júlí sl. Kortið er frábært innlegg fyrir útivistarfólk.

Málsnúmer 1305699

04

Dagur íslenskrar náttúru 2013

Erindi upplýsingafulltrúa Umhverfis- og auðlindaráðuneytis barst 23. ágúst varðandi dagskrá á Degi íslenskrar náttúru þann 16. september.

Umhverfisnefnd mun bjóða uppá fuglaskoðun í friðlandi Vífilsstaðavatns í leiðsögn Jóhanns Óla Hilmarssonar fuglafræðings mánudaginn 16. sept. frá kl. 17:00.Auglýst nánar í Garðapóstinum.

Málsnúmer 1309196

05

Samgönguvika 2013

Dagskrá evrópskrar samgönguviku 16.-22. september 2013, lögð fram.

Samstarfshópur Staðardagskrár 21 fulltrúa sveitarfélaga á SV horni landsins hafa ásamt ráðuneyti og frjálsum félagsamtökum unnið að dagskrá samgönguviku í ár.Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu munu taka þátt í sameiginlegri auglýsingu um málþing "Hjólum til framtíðar" sem haldið verður 20. sept. nk.

Málsnúmer 1309194

06

Útikennsla

Dagskrá um útikennslu við Vífilsstaðavatn dagana 30. sept. og 1. okt. með nemendum 7. bekkjadeilda Flataskóla, Hofsstaðaskóla og Álftanesskóla, lögð fram.

Umhverfisnefnd líst vel á dagskrána. Bjarni Jónsson fiskifræðingur mun annast umhverfisfræðslu um lífríki Víflisstaðavatns eins og undanfarin ár.Umhverfisstjóri fjallaði um önnur útikennsluverkefni sem voru kynnt skólastjórum grunnskóla 29. ágúst sl.

Málsnúmer 1309195

07

Trjágróður í Garðabæ

Drög að hugmynd að gerð leiðbeininga fyrir garðeigendur um trjágróður á lóðum frá EFLU verkfræðistofu, lögð fram.

Málið rætt og afgreiðslu frestað til næsta fundar nefndarinnar.

Málsnúmer 1309207

08

Friðlýstar minjar í Garðabæ

Bréf frá Ragnheiði Traustadóttur fornleifafræðingi dags 5. sept 2013 um friðlýstar minjar í Garðabæ. Minjar sem um ræðir eru:$line$1. Gjárétt í vesturenda Búrfellsgjár, svo og hellar og fyrirhleðslur og vatnsból þar.$line$2. Seltóftir margar, hellar og önnur mannvirki í og við norðurenda Selgjár.$line$3. Hið gamla virki Bessastaðaskans á Bessastöðum.$line$4. Skjónaleiði, hrossgröf, svolítil þúfa skammt frá gamla bæjarstæðinu á Hliði.

Umhverfisnefnd fagnar upplýsingum frá Ragneiði og mun senda þær áfram til bæjaryfirvalda með óskir um nauðsynlega varðveislu og úrbætur.

Málsnúmer 1309208

09

Fræðsluskilti um Búrfellshraun á Bala

Hönnun Árna Tryggvasonar á fræðsluskilti um Búrfellshraun sem staðsett verður á Bala, lögð fram. Fræðsluskiltið er samstarfsverkefni Hafnarfjarðar og Garðabæjar sem bæjarstjórarnir innsigluðu með samkomulagi á Bala þann 21. maí sl. eftir málþing um Búrfellshraun í húsi Náttúrufræðistofnunnar.

Umhverfisnefnd samþykkti hönnun skiltisins.