Beint í efni

34. fundur

05.11.2013
Umhverfisnefnd Garðabæjar

34. fundur

Umhverfisnefnd Garðabæjar

í miðrými 3. hæð á bæjarskrifstofum Garðabæjar við Garðatorg

05.11.2013

Kl. 17:00 - 19:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Júlía Guðrún Ingvarsdóttir - formaður
  • Þorsteinn Þorsteinsson - aðalmaður
  • Jón Bjarni Þorsteinsson - aðalmaður
  • Sigurbjörn Ingimundarson - aðalmaður
  • Sigríður Erla Jónsdóttir - aðalmaður
  • Elías Jakob Bjarnason - áheyrnarfulltrúi

Ritari

  • Erla Bil Bjarnardóttir

Dagskrá

Málsnúmer 1206034

01

Umhverfismál

Gestur fundarins var Guðmundur Einarsson framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlitsins.$line$$line$Hann lagði fram minnisblað dags. 5. nóv. sl. um umhverfisvöktun.

Fjallað var um:$line$1. Vöktun yfirborðsvatns lækja, vatna og sjávar.$line$2. Mengunarmælingar í mosa.$line$3. Frjókornamælingar.$line$4. Ómeðhöndlað vatn.$line$5. Kattahald.$line$6. Hundasamþykkt.$line$$line$Fyrirspurnir, umræður. $line$$line$Guðmundi þökkuð afar fræðandi og gott yfirlit um umhverfismál.

Málsnúmer 1310131

02

Ársfundur náttúruverndarnefnda 2013

Ársfundur Umhverfisstofnunar með náttúruverndarnefndum var haldinn í Safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli í Garðabæ 24.10.13. $line$Vettvangsferð var farin um Garðabæ með gesti fundarins m.a. var Náttúrufræðistofnun Íslands á Urriðaholti heimsótt, komið við á Bala þar sem bæjarstjórar Garðabæjar og Hafnarfjarðar afhjúpuðu fræðsluskilti um Búrfellshraun sem lið í verndun hraunanna.

Nefndarmenn voru sammála um að fundurinn hefði tekist vel. Formaður þakkaði umhverfisstjóra fyrir hennar þátt í skipulagningu fundarins og nefndarmönnum fundarstjórn fundarins.

Málsnúmer 1309195

03

Trjágróður í Garðabæ

Trjágróður við lóðamörk

Umhverfisnefnd hyggst vinna að stefnumótun um trjágróður í Garðabæ.