Beint í efni

18. fundur

11.11.2015
Umhverfisnefnd Garðabæjar

18. fundur

Umhverfisnefnd Garðabæjar

í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg

11.11.2015

Kl. 17:00 - 19:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Jóna Sæmundsdóttir - formaður
  • Jóhann Gunnar Jóhannsson - aðalmaður
  • Berglind Birgisdóttir - aðalmaður
  • Huginn Freyr Þorsteinsson - aðalmaður
  • Erling Jóhannesson - aðalmaður

Starfsmenn

  • Erla Bil Bjarnardóttir - umhverfisstjóri

Ritari

  • Erla Bil Bjarnardóttir

Dagskrá

Málsnúmer 1302243

01

Aðalskipulag Garðabæjar, endurskoðun.

Arinbjörn Vilhjálmsson skipulagsstjóri og skipulagsráðgjafarnir Árni Ólafsson frá Teiknistofu arkitekta og Yngvi Þór Loftsson frá Landmótun vinna við endurskoðun aðalskipulags Garðabæjar koma til fundarins með kynningu á vinnslu aðalskipulagsins.

Arinbjörn Vilhjálmsson skipulagsstjóri og skipulagsráðgjafarnir Árni Ólafsson frá Teiknistofu arkitekta og Yngvi Þór Loftsson frá Landmótun vinna við endurskoðun aðalskipulags Garðabæjar koma til fundarins með kynningu á vinnslu aðalskipulagsins.

Umhverfisnefnd þakkar góða kynningu.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1510376

02

Salernisaðstaða við strönd Sjálands

Vegna mikillar aðsóknar að útivistarsvæðinu við strönd Sjálands í enda Vesturbrúar hefur skapast ófremdarástand á sumrin vegna skorts á salernisaðstöðu.

Umhverfisnefnd telur nauðsynlegt að koma upp salernisaðstöðu varanlegri eða til bráðabirgða fyrir vorið 2016. Gert er ráð fyrir sjóbaðströnd í deiliskipulagi Sjálands.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1510171

03

Ársfundur náttúruverndarnefnda og Umhverfisstofnunar 2015

Boðað til árlegs ársfundar náttúruverndar/umhverfisnefnda með Umhverfisstofnun í Reykjavík þann 12. nóvember nk. Í fundarboði kemur fram að auk þessa árslega fundar eiga náttúruverndarnefndir að veita Umhverfisstofnun yfirlit yfir störf sín með skýrslu í lok hvers árs.

Einnig er boðað til ársfundar umsjónaraðila friðlýstra svæða þann 13. nóv. nk.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1511097

04

Ástandsskýrsla friðlýstra svæða 2015

Árleg ástandsskýrsla friðlýstra svæða í landi Garðabæjar unnin að beiðni Umhverfisstofnunar. Send stofnunni fyrir ársfund umsjónaraðila friðlýstra svæða haldinn 13.11.15 af Umhverfisstofnun.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1511100

05

Umsókn um styrk til verkefna á sviði umhverfis- og auðlindamála

Unnin styrkumsókn til endurheimts votlendis við Kasthúsatjörn til verkefnasjóðs Umhverfis- og auðlindaráðuneytis í ráðgjöf Baldurs Gunnlaugssonar hjá EFLU.

Umhverfisnefnd fagnar verkefninu.

Fylgiskjöl