28. fundur
28. fundur
Umhverfisnefnd Garðabæjar
í fundarherbergi 5. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
23.04.2013
Kl. 17:00 - 19:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Júlía Guðrún Ingvarsdóttir - formaður
- Þorsteinn Þorsteinsson - aðalmaður
- Jón Bjarni Þorsteinsson - aðalmaður
- Sigurbjörn Ingimundarson - aðalmaður
- Sigríður Erla Jónsdóttir - aðalmaður
- Erla Bil Bjarnardóttir - umhverfisstjóri
Ritari
- Erla Bil Bjarnardóttir
Elías Jakob Bjarnarson boðaði forföll.
Dagskrá
01
Strönd og lækir, mengunarmælingar
Erindi Heilbrigðiseftirliti 22.04.13 um niðurstöður sýnatöku á yfirborðsvatni í Arnarneslæk. Sýnatökur voru framkvæmdar þann 16. apríl sl.
Niðurstöður mælinganna ræddar.
02
Aðkoma að bæjarmörkum
Hugmyndir um merkingar á aðalvegum þegar ekið/hjólað/gengið er inn í Garðabæ.
Umhverfisnefnd beinir þeirri hugmynd til bæjarráðs að efna til samkeppni um slíkar merkingar á bæjarmörkum.
03
Hreinsunarátak 2013
Hreinsunarátak var skipulagt daganna 9. til 23. apríl, sem kynnt var í Garðapóstinum og í bæklingi inná hvert heimili í bænum.
Umhverfisstjóri sagði mjög góða þátttöku í verkefninu og sérstaklega ánægjulegt hve félög á Álftanesinu kæmu virk inn í verkefnið í fyrsta sinn. Veðrið hefur raskað tímasetningu vinnuhópa vegna tíðrar snjókomu. Verkefnið dregst eitthvað þar af leiðandi.
04
Fræðsluganga í Vífilsstaðasel
Fyrirhuguð er fræðsluganga upp að Vífilsstaðaseli í leiðsögn Ragnheiðar Traustadóttur fornleifafræðings.$line$Sunnudaginn 28. apríl kl. 13:00 frá Vífilsstaðavatni.
Gangan er liður í fræðslugöngum umhverfisnefndar.
05
Fundargerðir stjórnar Reykjanesfólkvangs 2013
Fundargerð stjórnar Reykjanesfólkvangs 13. febr. 2013 ásamt ársreikningi 2012.
Lagt fram.
06
Hundabann á varptíma
Hundabann er í gildi um varptíma við Vífilsstaðavatn og Urriðavatn frá 15. apríl til 1. júlí.
Hundabannið hefur verið auglýst í Garðapóstinum og Kópavogspóstinum, ásamt skiltum sem hefur verið komið upp við vötnin.
07
Sorphirða í Garðabæ 2013
Tveggja tunnu kerfi.
Umhverfisstjóri upplýsti að innleiðing pappírstunna er samkvæmt áætlun þ.e. kynning og merking. Afhending nýrra tunna hefur dregist frá framleiðanda.
08
Trjágróður á lóðum 2013
Minnisblað frá Smára Guðmundssyni garðyrkjustjóra 22.04.13 um trjágróður á lóðamörkum lagt fram.
371 garðeigendur fengu bréf um að klippa og snyrta trjágróður á mörkum lóða sinna, þar sem trjágróður slútir út yfir stéttar og stíga og veldur óþægindum.Garðyrkjustjóri skrifaði grein um málið í Garðapósti 7. mars sl. Leiðbeiningar um klippingu trjágróðurs eru einnig á heimasíðu bæjarins.Nefndin telur mikilvægt að fylgja þessum athugasemdum eftir.
09
Umhverfisfræðsla 2013
1. Náttúruleiksvæði með veðurvirkni, kennsluefni fyrir grunnskóla frá Helgu Sif Guðmundsdóttur og Kötlu Kjartansdóttur.$line$2. Fljúum hærra - Handbók leikskólakennara um fugla, eftir Gerði Gylfadóttur og Jóhönnu Torfadóttur.
Áhugaverð kennsluefni sem væri gott að kynna fyrir kennurum í Garðabæ.
10
Hringsjá Smalaholti
Kort af fyrirhugaðri Hringsjá sem setja á upp á Smalaholti á mörkum Garðabæjar og Kópavogs, lagt fram. Umhverfisnefnd Garðabæjar og umhverfisráð Kópavogs standa að verkefninu. Hönnuður hringsjár er Jakob Hálfdánarson.
Fyrirhugað er að setja upp hringsjánna í sumar.
11
Kynningar og önnur mál 2013
Umhverfisstjóri sagði frá ársfundi Náttúrufræðistofnunar Íslands, haldinn 12.04.13. og ársfundi Umhverfisstofnunar, haldinn 19.04.13
12
Hjólastígakort af höfuðborgarsvæði
Lögð fram drög að korti yfir hjóla- og gönguleiðir í Garðabæ og á höfuðborgarsvæðinu frá Mannvit verkfræðistofu.
Kortin er fyrirhugað að setja upp á vef bæjarins.