17 (22-26). fundur
17 (22-26). fundur
Umhverfisnefnd Garðabæjar
í Seylunni í Sveinatungu, Garðatorgi
08.05.2024
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Stella Stefánsdóttir - formaður
- Sófus Gústavsson - varamaður
- Eiríkur Þorbjörnsson - aðalmaður
- Greta Ósk Óskarsdóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
- Linda Björk Jóhannsdóttir - verkefnastjóri
- Egill Daði Gíslason - deildarstjóri umhverfis og framkvæmda
Ritari
- Linda Björk Jóhannsdóttir
Dagskrá
Málsnúmer 2101352
01
Samræming úrgangsflokkunar á höfuðborgarsvæðinu
Gyða S. Björnsdóttir, umhverfis- og gæðastjóri hjá Sorpu kynnir niðurstöðu húsasorpsrannsóknar.
Gyða S. Björnsdóttir, umhverfis- og gæðastjóri hjá SORPU kynnti niðurstöðu húsasorpsrannsóknar sem framkvæmd er árlega. Rætt var um endurvinnslu á matarleifum sem koma í GAJU, gas og jarðgerðarstöð sem breytt er í metangas og moltu. Ávinningur af notkun moltu rædd sem er lífrænn áburður og jarðvegsbætandi efni og því góður kostur fyrir garðeigendur.
Málsnúmer 2401607
02
Fundargerðir 2024 - Stjórn Reykjanesfólkvangs
Lagt fram.
Málsnúmer 2403209
03
mengunarmælingar 2024 - Umhverfisvöktun í vatni
Sigrún Hrönn Halldórsdóttir, heilbrigðisfulltrúi sem sinnir umhverfis- og mengunareftirliti hjá heilbrigðiseftirlitinu verður með kynningu á mengunarmælingum.
Sigrún Hrönn Halldórsdóttir, heilbrigðisfulltrúi kynnti niðurstöður á reglubundinni vöktun yfirborðsvatns og strandsjávarmengunarmælingum í Garðabæ.
Málsnúmer 2405044
04
Loftgæðamælingar - Umhverfisvöktun í lofti
Sigrún Hrönn Halldórsdóttir, heilbrigðisfulltrúi kynnir stuttlega samantekt á niðurstöðum loftgæðamælinga sem komnar eru frá tímabilinu september-desember 2023 á Garðaholti.
Sigrún Hrönn Halldórsdóttir, heilbrigðisfulltrúi kynnti samantekt á niðurstöðum loftgæðamælinga sem komnar eru frá tímabilinu september-desember 2023 á Garðaholti.