Beint í efni

34. fundur

11.08.2021
Umhverfisnefnd Garðabæjar

34. fundur

Umhverfisnefnd Garðabæjar

í Seylunni í Sveinatungu, Garðatorgi

11.08.2021

Kl. 08:00 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
  • Guðfinnur Sigurvinsson - aðalmaður
  • Hrönn K. Sch. Hallgrímsdóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Guðbjörg Brá Gísladóttir - deildarstjóri umhverfis og framkvæmda

Ritari

  • Guðbjörg Brá Gísladóttir

Dagskrá

Málsnúmer 2105597

01

Heilbrigðiseftirlitið

Páll Stefánsson heilbrigðisfulltrúi kynnti starfsemi heilbrigðiseftirlitsins.

Farið var yfir ábendingar íbúa varðandi ylströndina, mælingar gefa ekki til kynna að það sé mengun af mannavöldum. Starfsmenn Garðabæjar hafa gengið ströndina í sumar til að kanna ástand og hafa ekki fundið mengun sem rekja má til mannlegs samfélags.

Umhverfisnefnd leggur til að fengin verði óháður aðili, til að skoða aðstæður nánar.

Málsnúmer 2105738

02

Umburðarbréf vegna breytinga á jarðalögum nr. 81/2004

Lagt fram.

Málsnúmer 2106495

03

Aðalfundur Landverndar júní 2021 - nagladekk

Umhverfisnefnd telur rétt að málið verið tekið upp á vettvangi SSH.

Málsnúmer 2011074

04

Skilti á náttúrusvæðum í Garðabæ

Umhverfisnefnd tekur vel í erindi þess efni að sett verði upp upplýsingarskilti um nýjan stíg, Sveinbjarnarstíg að að þar komi fram nafn stígsins og smá upplýsingar um Sveinbjörn, Lambhús og stjörnuskoðunarstöðina.

Málsnúmer 2107028

05

Snyrtilegt umhverfi 2021

Umhverfisnefnd vill tilnefna aðila fyrir góðan árangur við flokkun og úrgangsstjórnun. og mun leggja inn tillögu til bæjarráðs. Viðurkenningar verða veittar 24. ágúst.

Málsnúmer 2108191

06

Samgönguvika 2021

Evrópsk samgönguviku 2021 hefur opnað fyrir skráningu fyrir borgir, bæjarfélög, skóla, góðgerðarsamtök og fyrirtæki sem vilja taka þátt í evrópskri samgönguviku 2021 sem haldinn verður 16. til 22. september 2021. Slagorð evrópskrar samgönguviku á Íslandi 2021 verður "Veljum grænu leiðina fyrir umhverfið og heilsuna".