Beint í efni

16. fundur

21.03.2016
Ungmennaráð Garðabæjar

16. fundur

Ungmennaráð Garðabæjar

í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg

21.03.2016

Kl. 15:00 - 16:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Anna Bjarnsteinsdóttir - aðalmaður
  • Aron Jóhannsson - aðalmaður
  • Ágúst Ingi Bragason - aðalmaður
  • Birta Ósk Hjaltadóttir - aðalmaður
  • Ísak Örn Jafetsson - aðalmaður
  • Sara Sól Hannesdóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Sunna Guðrún Sigurðardóttir - þjónustustjóri

Ritari

  • Sunna Sigurðardóttir

Dagskrá

Málsnúmer 1601513

01

Ungt fólk og lýðræði 2016 16.-18. mars.

Ráðstefnan Ungt fólk og lýðræði var haldin á Selfossi. Birta Ósk og Indíana Lind fóru fyrir hönd ungmennaráðs Garðabæjar, Birta Ósk sagði stuttlega frá því sem fram fór.

Málsnúmer 1603147

02

Samráðsfundir ungs fólks í Garðabæ

Nokkrir fulltrúar fóru á ráðstefnu Evrópu unga fólksins í febrúar. Birta Ósk og Sara Sól komu með hugmynd um að halda samráðsfund ungmenna úr öllum grunn- og framhaldsskólum í Garðabæ. Þær tvær munu leiða málið áfram.

Málsnúmer 1512265

03

Frítíminn er okkar fag - skýrsla ráðstefnu 16. okt 2015

Skýrslan kynnt stuttlega.

Málsnúmer 1509292

04

Kynning á appi fyrir ferðamenn o.fl.

Beðið um hugmyndir frá ungmennaráði um Garðabæjarapp. Fulltrúum leist vel á að hafa þar göngu- hlaupa- og hjólaleiðir. Einnig mögulega viðburði (íþróttaviðburði og menningarviðburði) í slíku appi og mögulega upplýsingar um forföll kennara líka.

Málsnúmer 1511360

05

Vinabæjamót í Jakobstad 2016

Vinarbæjarmót verður haldið í Jakobstad í Finnlandi dagana 1.-2. júlí, koma verður 30. júní og brottför 3. júlí. 4 fulltrúar úr ungmennaráði geta farið með, helst ekki eldri en þau sem verða 18 ára á þessu ári. Umsóknareyðublaði dreift til fulltrúa.