Beint í efni

19. fundur

31.01.2017
Ungmennaráð Garðabæjar

19. fundur

Ungmennaráð Garðabæjar

í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg

31.01.2017

Kl. 17:30 - 18:30

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Elías Kristinn Kristinsson - aðalmaður
  • Magnús Hólm Einarsson - varamaður
  • Ingibjörg Þór Árnadóttir - aðalmaður
  • Selma Rós Axelsdóttir - aðalmaður
  • Jóel Ísak Jóelsson - aðalmaður
  • Anna Katrín Hálfdanardóttir - aðalmaður
  • Snæfríður Tindsdóttir - aðalmaður
  • Fannar Ingi Grétarsson - aðalmaður
  • Ágúst Ingi Bragason - aðalmaður
  • Anna Karen Elvarsdóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Sunna Guðrún Sigurðardóttir - þjónustustjóri

Ritari

  • Sunna Sigurðardóttir

Dagskrá

Málsnúmer 1702097

01

Fyrsti fundur 2017, með bæjarstjóra

Fundargerð ritaði: Sigríður Elísabet Ragnarsdóttir forstöðumaður Elítunnar.



1. Gunnar Einarsson bæjarstjóri setur fundinn og ræðir við ráðið. Gunnar Einarsson bæjarstjóri hvatti ungmennin til að vera dugleg að mæta og koma sínum skoðunum á framfæri. Lagði áherslu á tengingu ráðsins við bæjarstjórn. Ungmennin fengu tækifæri á að bera fram spurningar.

2. Kynning á nýjum umsjónarmanni

Helga Vala Gunnarsdóttir nýr umsjónarmaður ráðsins kynnir sig. Allir þeir sem eru viðstaddir kynna sig.

3. Breytt fyrirkomulag funda ungmennarás

Helga Vala fer yfir breytingar þar sem lögð er áhersla á að fulltrúar ráðsins taki smátt og smátt við stjórnun fundanna og meiri ábyrgð er á höndum ráðsins.

4. Fundartími

Tillaga er borin fram um að fundirnir verði á sitthvorum vikudeginum

5. Mæting aðal- og varamanna

Áhersla lögð á að aðalmenn mæti á fundi ef þeir komast ekki verður að láta varamann vita.

6. Formaður, varaformaður og ritari ráðsins

Tillaga um að kjósa formann, varaformann og ritara ráðsins. Farið var yfir með hvaða hætti það ætti að vera gert og farið var yfir ábyrgð þessara embætta.

7. Ungmennaþing

Farið yfir tímasetningu á ungmennaþingi og fyrirkomulag. Ungmennaþing Garðabæjar verður haldið haustið 2017.

8. Dagskrá vorannar hjá Ungmennaráði

Fundir ráðsins verða haldnir að jafnaði einu sinni í mánuði, hópefli og þjálfun verður einnig á vorönn 2017.



9. Hópefli Ungmennaráðs

Tími fundinn fyrir hópefli fyrir hópinn. Allur hópurinn fer saman í hópefli 5. Febrúar 2017.



10. Áherslur og markmið Ungmennaráðs

Aðeins minnst á áherslur og markmið ráðsins sem tekið verður fyrir fljótlega.

11. ÍTG fundir

Umræða um að Ungmennaráð ætti að eiga sæti í a.m.k. ÍTG nefndinni. Verður lagt til á næstu vikum.

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:40.