28. fundur
28. fundur
Ungmennaráð Garðabæjar
í Sjálandsskóla
05.03.2018
Kl. 17:00 - 18:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Birta Ósk Hjaltadóttir - aðalmaður
- Jóel Ísak Jóelsson - aðalmaður
- Ágúst Ingi Bragason - aðalmaður
Starfsmenn
- Sunna Guðrún Sigurðardóttir - þjónustustjóri
- Helga Vala Gunnarsdóttir - forstöðumaður Klakans
- Sigríður Elísabet Ragnarsdótti - forstöðumaður Elítunnar
Ritari
- Helga Vala Gunnarsdóttir
Dagskrá
Málsnúmer 1804230
01
Kragaráð ungmennaráða
Kragaráð. Þrír fulltrúar ungmennaráðs Garðabæjar fóru á fund með öðrum fulltrúum bæjarfélaga í Kraganum. Rædd fyrirhuguð keppni í anda Skrekks, hvernig fyrirkomulagið ætti að vera, hvenær hún ætti að vera o.s.frv. Allir fengu verkefni með sér heim og næsti fundur áætlaður 10. mars en þá ættu að vera komnar frekari upplýsingar varðandi fyrirhugaða keppni.
Málsnúmer 1804232
02
Sumarstörf meðlima ungmennaráðs og viðburðir í sumar
Sumarvinna fyrir ungmennaráðið? Ósk er um að ungmennaráðið fái verkefni í sumar að skipuleggi útihátíð/tónleika fyrir Garðabæ. Ungmennin vilja vita hvort þau gætu fengið greitt fyrir þann undirbúning sem sumarvinnu á vegum bæjarins. Erindi verður sent á Gunnar Hrafn Gunnarsson.
Ungmennaráð, mæting og skuldbinding ungmenna í ráðinu rædd. Fyrirhugaðar breytingar ræddar og framhald skipulagt.