3. fundur
3. fundur
Ungmennaráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
13.04.2023
Kl. 16:00 - 16:45
Um fundinn
Nefndarmenn
- Valgerður Eyja Eyþórsdóttir
- Askur Hrafn Hannesson
- Anna Kristín Elmarsdóttir
- Heiða Bríet Andradóttir
- Emilía Ósk Hauksdóttir
- Eyþór Elvar Þórarinsson
Starfsmenn
- Tómas Þór Jacobsen
Ritari
- Tómas Þór Jacobsen
Dagskrá
Málsnúmer 2304128
01
Fundur ungmennaráðs með bæjarstjórn
Málefni til umræðu.
Störf bæjarstjórnar og fundaform bæjarstjórnar.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, forseti bæjarstjórnar fór nánar yfir störf bæjarstjórnar. Sigríður Hulda vakti athygli á að fundir bæjarstjórnar væru opnir fundir og að allir væru velkomnir til að vera viðstaddir fundi bæjarstjórnar.
Almenningssamgöngur, Strætó og tengd málefni.
Fram kom hjá fulltrúum ungmennaráðs að fjölga þurfi ferðum á leiðum 22 og 23 og sérstaklega á kvöldin. Bentu þau á að um öryggisatriði væri að ræða til að tryggja samgöngur eftir æfingar og ýmsa viðburði. Rætt um göngustíga og fram kom þörf á að bæta göngustíg út á Álftanes.
Til máls tóku.
Emelía Ósk Hauksdóttir, Valgerður Eyja Eyþórsdóttir, Askur Hrafn Hannesson, Erla Sólbjört Jónsdóttir, Anna Kristín Elmarsdóttir, Hrannar Bragi Eyjólfsson, Björg Fenger, Sara Dögg Svanhildardóttir, Auður Ýr Magnúsdóttir, Þorbjörg Þorvaldsdóttir, Heiða Bríet Andradóttir og Almar Guðmundsson.
Ungmennahús.
Mikið hjartans mál ungmennaráðs er að fá stað til að hittast. Mikilvægt að hafa ungmennaráð með í málum og huga þurfi að staðsetningu sem tengist greiðum almenningssamgöngum.
Til máls tóku.
Askur Hrafn Hannesson og Almar Guðmundsson.
Húsnæðismál.
Mikilvægt er að í boði sé íbúðarhúsnæði fyrir ungt fólk til að tryggja megi áframhaldandi búsetu þess í bænum. Fram kom að áhugavert væri að byggja stúdentaíbúðir í Garðabæ. Undir þessum lið komu einnig fram hugmyndir um að hækka aldursviðmið hvatapeninga úr 18 í 20.
Til máls tóku.
Askur Hrafn Hannesson, Gunnar Valur Gíslason, Hrannar Bragi Eyjólfsson, Hlynur Bæringsson.
Í lok fundar þakkaði forseti bæjarstjórnar fulltrúum í ungmennaráði fyrir málefnalegar og áhugaverðar umræður. Forseti hvatti fulltrúa ungmennaráðs til dáða og góðra verka fyrir unga fólkið í Garðabæ.