Beint í efni

1. fundur

17.01.2024
Velferðarráð Garðabæjar

1. fundur

Velferðarráð Garðabæjar

í Búrfelli í Sveinatungu, Garðatorgi

17.01.2024

Kl. 16:00 - 17:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Gunnar Valur Gíslason - formaður
  • Sturla D Þorsteinsson - aðalmaður
  • María Guðjónsdóttir - aðalmaður
  • Þorbjörg Þorvaldsdóttir - aðalmaður
  • Tamar Klara Lipka Þormarsdóttir - aðalmaður
  • Brynja Dan Gunnarsdóttir - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Svanhildur Þengilsdóttir
  • Snædís Björnsdóttir - verkefnastjóri

Ritari

  • Svanhildur Þengilsdóttir

Dagskrá

Málsnúmer 2312277

01

Umsókn um fjárhagsaðstoð

Beiðni um endurskoðun afgreiðslu afgreiðslufundar fjárhagsaðstoðar frá 5. janúar 2024.

Ákvörðun afgreiðslufundar fjárhagsaðstoðar frá 5. janúar 2024 í máli nr. 2312277 um skerðingu á fjárhagsaðstoð er staðfest en samþykkt að skerðing komi til framkvæmda í sex hlutum í stað fjögurra. Nánar er bókað um málið í trúnaðarmálahluta fundargerðar.

Málsnúmer 2312145

02

Umsókn um fjárhagsaðstoð

Beiðni um endurskoðun synjunar afgreiðslufundar fjárhagsaðstoðar frá 4. janúar 2024 um styrk á grundvelli 25. gr. reglna um fjárhagsaðstoð í Garðabæ.

Niðurstaða afgreiðslufundar fjárhagsaðstoðar frá 4. janúar 2024 í máli 2312145 er staðfest. Nánar er bókað um málið í trúnaðarmálahluta fundargerðar.

Málsnúmer 2312373

03

Umsókn um fjárhagsaðstoð

Beiðni um endurskoðun skerðingu á fjárhagsaðstoð vegna 2. mgr. 3. gr. reglna um fjárhagsaðstoð í Garðabæ.

Samþykkt að veita undanþágu frá skilyrðum 2. mgr. 3. gr. reglna um fjárhagsaðstoð í Garðabæ. Nánar er bókað um málið í trúnaðarmálahluta fundargerðar.

Málsnúmer 2310238

04

Stuðningsþjónusta

Beiðni um endurskoðun afgreiðslu afgreiðslufundar stuðnings- og stoðþjónustu frá 19. desember 2023.

Niðurstaða afgreiðslufundar stuðnings- og stoðþjónustu frá 19. desember 2023 í máli nr. 2310238 er staðfest. Nánar er bókað um málið í trúnaðarmálahluta fundargerðar.

Málsnúmer 2301082

05

Jafnréttisáætlun Garðabæjar 2023-2026

Vinna við gerð jafnréttisáætlunar Garðabæjar fyrir árin 2023-2026.

Umræða um jafnréttisáætlun Garðabæjar og aðgerðaráætlun á grundvelli hennar fyrir árin 2023-2026. Stefnt er að því að fyrstu drög aðgerðaráætlun liggi fyrir á næsta fundi velferðarráðs.