Beint í efni

Heims­mark­mið

Af 17 yfirmarkmiðum Heimsmarkmiðanna og 169 undirmarkmiðum voru 38 undirmarkmið valin fyrir Garðabæ.

Heimsmarkmiðin

Af 17 yfirmarkmiðum Heimsmarkmiðanna og 169 undirmarkmiðum voru 38 undirmarkmið valin fyrir Garðabæ og má þau finna hér að neðan. Yfirmarkmiðin 17 hafa heiti og númer og koma undirmarkmiðin svo fyrir neðan þau. Á vef Heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna er hægt að lesa sér til um öll undirmarkmiðin 169 og finna frekari upplýsingar um heims-markmiðin og tilgang þeirra.

01

Engin fátækt

1.2 Minnka fátækt um amk helming
Eigi síðar en árið 2030 búi a.m.k helmingi færri karlar, konur og börn, óháð aldri, við fátækt eins og hún er skilgreind í hverju landi.

03

Heilsa og vellíðan

3.4 Fækkun ótímabærra dauðsfalla og stuðla að geðheilbrigði
Eigi síðar en árið 2030 hafi ótímabærum dauðsföllum af völdum annarra sjúkdóma en smitsjúkdóma verið fækkað um þriðjung með fyrirbyggjandi aðgerðum og meðferð og stuðlað að geðheilbrigði og vellíðan.

3.5 Efla forvarnir
Efldar verði forvarnir og meðferð vegna misnotkunar vímuefna, þar á meðal fíkniefna og áfengis. 

3.6 Færri dauðsföll í umferðarslysum
Eigi síðar en árið 2020 verði búið að ná fjölda dauðsfalla og alvarlega slasaðra vegna umferðarslysa niður um helming á heimsvísu.

04

Menntun fyrir alla

4.1 Grunnskólamenntun án endurgjalds fyrir alla
Eigi síðar en árið 2030 verði tryggt að allar stúlkur og drengir ljúki góðri grunnskólamenntun á jafnréttisgrundvelli án endurgjalds til að öðlast viðeigandi og gagnlega menntun. 

4.4 Auka hagnýta kunnáttu
Eigi síðar en árið 2030 hafi ungmennum og fullorðnum með hagnýta kunnáttu fjölgað umtalsvert, þar á meðal á sviði tækni- og starfsmenntunar, til þess að geta gegnt viðeigandi störfum, fengið mannsæmandi vinnu og stundað frumkvöðlastarfsemi.

4.7 Þekking á sjálfbærri þróun
Eigi síðar en árið 2030 verði tryggt að allir nemendur öðlist nauðsynlega þekkingu og færni til þess að ýta undir sjálfbæra þróun, meðal annars með menntun sem er ætlað að efla sjálfbæra þróun og sjálfbæran lífsstíl, með því að hlúa að friðsamlegri menningu, með mannréttindum, kynjajafnrétti, alheimsvitund, viðurkenndri menningarlegri fjölbreytni og framlagi menningar til sjálfbærrar þróunar.

05

Jafnrétti kynjanna

5.1 Afnema mismunun gagnvart konum og stúlkum
Öll mismunun gagnvart konum og stúlkum verði afnumin alls staðar.

5.2 Afnema allt ofbeldi gagnvart konum og stúlkum
Hvers kyns ofbeldi gagnvart konum og stúlkum á opinberum vettvangi sem og í einkalífi, þ.m.t. mansal, kynferðisleg misneyting og misneyting af öðru tagi, verði ekki liðið og regluverk sem styður við ofbeldi afnumið.

5.5 Tryggja virka þátttöku kvenna
Tryggð verði virk þátttaka kvenna og jöfn tækifæri þeirra til að vera leiðandi við ákvarðanatöku á öllum sviðum stjórn- og efnahagsmála sem og á opinberum vettvangi

06

Hreint vatn og hreinlætisaðstaða

6.3 Aukin vatnsgæði, vinnsla frárennslis-vatns og örugg endurnýting
Eigi síðar en árið 2030 verði vatnsgæði aukin með því að draga úr mengun, útiloka óæskilega sorplosun og lágmarka losun hættulegra efna og efnablandna. Hlutfall óunnins skólps og frárennslisvatns verði minnkað um helming og endurvinnsla og örugg endurnýting aukin til muna um heim allan.

6.5 Samþætt stjórnun vatnsauðlinda
Eigi síðar en árið 2030 verði stjórnun vatnsauðlinda samþætt á öllum sviðum, meðal annars með samstarfi yfir landamæri eftir því sem við á.

6.6 Vernd og endurheimt vatnstengdra vistkerfa
Eigi síðar en árið 2020 verði unnið að úrræðum til að vernda og endurheimta vatnstengd vistkerfi, þ.m.t. fjalllendi, skóga, votlendi, ár, grunnvatnsból og vötn.

09

Nýsköpun og uppbygging

9.1 Þróa sjálfbæra og trausta innviði
Þróaðir verði traustir innviðir, sjálfbærir og sveigjanlegir, hvort sem er staðbundnir eða yfir landamæri, í því skyni að styðja við efnahagsþróun og velmegun þar sem lögð verði áhersla á jafnt aðgengi á viðráðanlegu verði fyrir alla.

9.C Almennt aðgengi að upplýsinga- og fjarskiptatækni
Aðgengi að upplýsinga- og fjarskiptatækni verði aukið verulega og lagt kapp á að almenningur hafi aðgang að netinu á viðráðanlegu verði í þeim þróunarlöndum sem eru skemmst á veg komin.

10

Aukinn jöfnuður

10.2 Óhindrað aðgengi að félagslífi, stjórnmálum og efnahagslífi
Eigi síðar en árið 2030 verði öllum gert kleift að taka þátt í félagslífi og hafa afskipti af efnahagsmálum og stjórnmálum, án tillits til aldurs, kyns, fötlunar, kynþáttar, þjóðernis, uppruna, trúarbragða, efnahags eða annarrar stöðu.

10.3 Tryggja jöfn tækifæri og draga úr ójöfnuði
Tryggð verði jöfn tækifæri og dregið úr ójöfnuði, meðal annars með afnámi laga, breyttri stefnumótun og starfsháttum sem ala á mismunun, samhliða því að þrýsta á lagasetningu, stefnumótun og starfshætti sem styðja við markmiðið.

11

Sjálfbærar borgir og samfélög

11.1 Öruggt húsnæði á viðráðanlegu verði
Eigi síðar en árið 2030 geti allir orðið sér úti um fullnægjandi og öruggt húsnæði á viðráðanlegu verði, fátækrahverfi verði endurbætt og grunnþjónusta standi öllum til boða.

11.2 Öruggar og sjálfbærar samgöngur
Eigi síðar en árið 2030 geti allir ferðast með öruggum sjálfbærum samgöngutækjum á viðráðanlegu verði á bættu vegakerfi. Lögð verði áhersla á betri almenningssamgöngur sem taka mið af fólki í viðkvæmri stöðu, konum, börnum, fötluðu fólki og öldruðum.

11.3 Sjálfbær fjölgun í þéttbýli og meiri þátttaka í skipulagsmálum
Eigi síðar en árið 2030 verði fjölgun í þéttbýli sjálfbær og íbúar alls staðar í heiminum taki meiri þátt í skipulagsmálum og samkomulagi um sjálfbærni.

11.4 Vernda náttúru- og menningararfleifð
Blásið til sóknar til þess að vernda og tryggja náttúru- og menningararfleifð heimsins.

11.6 Draga úr skaðlegum umhverfisáhrifum í borgum
Eigi síðar en árið 2030 verði dregið úr skaðlegum umhverfisáhrifum í borgum, meðal annars með því að bæta loftgæði og meðhöndlun úrgangs.

11.7 Tryggja aðgengi að öruggum grænum svæðum
Eigi síðar en árið 2030 verði græn svæði gerð örugg og aðgengileg fyrir almenning, einkum konur og börn, aldraða og fatlað fólk.

11.A Styrkja áætlanir um byggðaþróun
Stutt verði við jákvæð efnahags-, félags- og umhverfisleg tengsl milli þéttbýlis, þéttbýlla svæða í borgarjaðri og dreifbýlissvæða með því að styrkja áætlanir um byggðaþróun á landsvísu og innan svæða

12

Ábyrg neysla og framleiðsla

12.2 Sjálfbær og skilvirk nýting náttúruauðlinda
Eigi síðar en árið 2030 verði markmiðum um sjálfbæra og skilvirka nýtingu náttúruauðlinda náð.

12.5 Verulega dregið úr sóun
Eigi síðar en árið 2030 hafi forvarnir, minni úrgangur, aukin endurvinnsla og endurnýting dregið verulega úr sóun.

12.7 Sjálfbært verklag í opinberum innkaupum
Stuðlað verði að sjálfbæru verklagi við opinber innkaup í samræmi við innlenda stefnu og forgangsröðun.

13

Aðgerðir í loftslagsmálum

13.1 Auknar viðbragðsáætlanir og forvarnir
Auka viðbragðsáætlanir og forvarnir við vá af völdum loftslagsbreytinga og náttúruhamfara alls staðar í heiminum.

13.2 Ráðstafanir vegna loftslagsbreytinga
Ráðstafanir vegna loftslagsbreytinga verði að finna í landsáætlunum, stefnumótunum og skipulagi.

14

Líf í vatni

14.2 Verndun vistkerfis sjávar og stranda
Eigi síðar en árið 2020 verði gengið vel um vistkerfi sjávar og stranda og þau vernduð á sjálfbæran hátt til að koma í veg fyrir skaðleg áhrif, þar á meðal með því að grípa til aðgerða til að endurheimta og hlúa að vistkerfunum og njóta ábatans.

15

Líf á landi

15.1 Verndun og sjálfbær nýting vistkerfa á landi og í ferskvatni
Eigi síðar en árið 2020 verði vistkerfi á landi og í ferskvatni vernduð og stuðlað að sjálfbærri nýtingu þeirra og endurheimt, einkum skóga, votlendis, fjalllendis og þurrkasvæða, í samræmi við skuldbindingar samkvæmt alþjóðasamningum.

15.5 Verndun náttúrulegra búsvæða og líffræðilegrar fjölbreytni
Gripið verði til brýnna og nauðsynlegra aðgerða til að sporna við hnignun náttúrulegra búsvæða og líffræðilegrar fjölbreytni. Eigi síðar en árið 2020 verði gripið til aðgerða til að vernda tegundir í bráðri hættu og koma í veg fyrir útrýmingu þeirra.

15.9 Gildi vistkerfis og líffræðilegrar fjölbreytni verði hluti af opinberum áætlunum
Eigi síðar en árið 2020 verði tekið tillit til gildis vistkerfis og líffræðilegrar fjölbreytni við gerð lands- og svæðisáætlana og í öllu þróunarferli, skýrslugerðum og aðgerðum til að draga úr fátækt.

16

Friður og réttlæti

16.1 Dregið úr hvers kyns ofbeldi
Dregið verði verulega úr hvers kyns ofbeldi og dauðsföllum sem rekja má til þess.

16.2 Tekið fyrir hvers kyns misnotkun og ofbeldi gegn börnum
Tekið verði fyrir misnotkun, misneytingu, mansal og hvers kyns ofbeldi gegn börnum og pyntingar verði upprættar.

16.6 Uppbygging skilvirkra, ábyrgra og gagnsærra stofnana
Byggðar verði upp skilvirkar og ábyrgar stofnanir á öllum sviðum sem hafa gagnsæi að leiðarljósi.

16.7 Tryggja ákvarðanatöku á öllum sviðum og víðtæka þátttöku
Teknar verði ákvarðanir á öllum sviðum þar sem brugðist er við aðstæðum og víðtæk þátttaka tryggð.

17

Sammvinna um markmiðin

17.17 Hvetja til samstarfs borgara, opinberra- og einkaaðila
Hvetja til skilvirkra samstarfsverkefna hjá hinu opinbera, milli opinbera geirans og einkaaðila og á meðal borgaranna og styðja við slík verkefni. Við framkvæmd þeirra verði byggt á reynslu af samstarfsverkefnum almennt og útsjónarsemi höfð í fyrirrúmi.

Heimsmarkmið - Garðabær