Laus störf
Garðabær leggur áherslu á að veita íbúum bæjarins framúrskarandi þjónustu og sækist eftir að ráða til starfa metnaðarfulla og færa einstaklinga sem eru jákvæðir, faglegir og áreiðanlegir.
Kynntu þér laus störf hjá Garðabæ hér fyrir neðan.
Bæjarskrifstofur
Verkefnastjóri barna með fjölbreyttan menningar- og tungumálabakgrunn
Garðabær auglýsir nýtt starf verkefnisstjóra í málefnum barna með fjölbreyttan menningar- og tungumálabakgrunn á fræðslu- og frístundasviði.
Verkefnastjóri fer með faglega forystu í málaflokknum og ábyrgð á stuðningi og ráðgjöf til stjórnenda, kennara og starfsfólks í leikskólum, grunnskólum, frístundum og félagsmiðstöðvum.
Sækja um starfStarfshlutfallFullt starfUmsóknarfrestur29. júní 2026
Grunnskólar
Álftanesskóli - umsjónarmaður frístundaheimilisins Álftamýri
Álftanesskóli er heildstæður grunnskóli. Í skólanum eru tæplega 400 nemendur og 75 starfsmenn. Áhersla er lögð á metnaðarfullt starf, vellíðan nemenda og umhverfisvernd. Í Álftanesskóla er áhersla lögð á að hver nemandi fái kennslu við hæfi til að þroska hæfileika sína – allir eru einstakir.
Sækja um starfStarfshlutfallFullt starfUmsóknarfrestur5. júlí 2026Garðaskóli - stuðningsfulltrúi
Garðaskóli auglýsir eftir stuðningsfulltrúa fyrir skólaárið 2026 - 2027
Garðaskóli í Garðabæ er unglingaskóli þar sem u.þ.b. 550 nemendur stunda nám í 8.-10. bekk. Í skólanum er lögð áhersla á að starfsfólk sérhæfi sig í vinnu með unglingum og kennslu faggreina.
Sækja um starfStarfshlutfallHlutastarfUmsóknarfrestur27. júní 2026Álftanesskóli - kennari á miðstig
Álftanesskóli er grunnskóli fyrir nemendur í 1.-10. bekk. Í skólanum eru tæplega 390 nemendur og 75 starfsmenn. Áhersla er lögð á metnaðarfullt starf, vellíðan nemenda og umhverfisvernd. Í Álftanesskóla er áhersla lögð á að hver nemandi fái kennslu við hæfi til að þroska hæfileika sína – allir eru einstakir.
Sækja um starfStarfshlutfallHlutastarfUmsóknarfrestur1. júlí 2026Hofsstaðaskóli - leiðbeinandi á frístundaheimili
Frístundaheimilið Regnboginn í Hofsstaðaskóla þjónar um 200 börnum í 1.-4. bekk og veitir þeim og foreldrum þeirra heildstæða og faglega frítímaþjónustu í samþættu skóla- og frístundastarfi. Í boði er hlutastarf eftir hádegi. Hentar vel sem aukavinna með námi og/eða öðru starfi. Opnunartími er frá kl. 13:30 -16:30.
Sækja um starfStarfshlutfallHlutastarfUmsóknarfrestur5. ágúst 2026Sjálandsskóli - kennari í hönnun, smíði og nýsköpun
Sjálandsskóli auglýsir eftir kennara í hönnun, smíði og nýsköpun í 1.-10. bekk. Um er að ræða framtíðarstarf.
Sjálandsskóli er grunnskóli í Garðabæ fyrir nemendur í 1.-10. bekk. Í Sjálandsskóla er lögð áhersla á skólastarf sem einkennist af vilja og virðingu með hag nemenda að leiðarljósi.
Sækja um starfStarfshlutfallFullt starfUmsóknarfrestur29. júní 2026
Leikskólar
Leikskólinn Akrar - starfsmaður í stuðning
Leikskólinn Akrar auglýsir eftir starfsmanni til að bera ábyrgð á stuðningi við barn með sérþarfir í samvinnu við deildarstjóra og sérkennslustjóra.
Akrar er fjögurra deilda leikskóli þar sem áhersla er lögð á nám í gegnum leik í skapandi námsumhverfi. Starfsandi á Ökrum er góður og einkennist af jákvæðni, gleði og góðri samvinnu.
Sækja um starfStarfshlutfallFullt starfUmsóknarfrestur31. júlí 2026Heilsuleikskólinn Holtakot - leikskólakennari
Heilsuleikskólinn Holtakot auglýsir eftir leikskólakennara í 100% starfshlutfall.
Leikskólinn er fjögurra deilda leikskóli þar sem lögð er áhersla á hreyfingu, listsköpun og hollt matarræði. Skólinn er Grænfánaskóli og starfar eftir "Uppeldi til ábyrgðar".
Sækja um starfStarfshlutfallFullt starfUmsóknarfrestur7. júlí 2026Leikskólinn Bæjarból - leikskólakennari í hreyfingu
Leikskólinn Bæjarból auglýsir eftir leikskólakennara í 100% stöðu þar af 50% í útihreyfingu. Leikskólinn er fjögurra deilda með börn á aldrinum 1-5 ára. Lögð er áhersla á hreyfingu, hreysti og útiveru í starfi leikskólans.
Einkunnarorð leikskólans eru: Leikur – Hreyfing – Lífsleikni
Sækja um starfStarfshlutfallFullt starfUmsóknarfrestur20. júlí 2026Leikskólinn Bæjarból - leikskólakennari
Leikskólinn Bæjarból auglýsir eftir leikskólakennara í 100% stöðu. Leikskólinn er fjögurra deilda með börn á aldrinum 1-5 ára. Lögð er áhersla á hreyfingu, hreysti og útiveru í starfi leikskólans.
Einkunnarorð leikskólans eru: Leikur – Hreyfing – Lífsleikni
Sækja um starfStarfshlutfallFullt starfUmsóknarfrestur20. júlí 2026Urriðaholtsskóli - leikskólakennari
Urriðaholtsskóli er samrekinn leik- og grunnskóli í Garðabæ. Auglýst er eftir leikskólakennurum til að taka þátt í að móta og byggja upp skólasamfélag þar sem áhersla er á skapandi starf með einstaklinginn í fyrirrúmi.
Sækja um starfStarfshlutfallFullt starfUmsóknarfrestur27. júní 2026
Málefni fatlaðs fólks
Krókamýri - starf á heimili fatlaðs fólks
Velferðarsvið Garðabæjar leitar að sumarstarfsfólki á heimili fatlaðs fólks. Vaktavinna, 70-80 % starf. Unnið að jafnaði aðra hverja helgi, morgun, dag, kvöld og næturvaktir.
Sækja um starfStarfshlutfallHlutastarfUmsóknarfrestur26. júní 2026
Laun sumarstarfsfólks 2026
Hér má finna upplýsingar um laun sumarstarfsfólks 2026
Hlunnindi fyrir starfsmenn
Garðabær býður starfsfólki upp á ýmis hlunnindi. Aukin hlunnindi eru sérstaklega í boði fyrir starfsfólk leikskóla.
- Heilsuræktarstyrkur fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall að upphæð 20.000 kr. eftir 6 mánuði í starfi
- Bókasafnskort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
- Menningarkort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
- Sundlaugarkort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
- Árshátíð er starfsmönnum að kostnaðarlausu
- Íslenskunámskeið fyrir erlenda starfsmenn
Aukin hlunnindi fyrir starfsfólk leikskóla
- Forgangur á leikskóla fyrir börn starfsfólks með lögheimili í Garðabæ og í 75% starfshlutfalli eða meira
- 40% afsláttur á leikskólagjöldum fyrir starfsfólk með lögheimili í Garðabæ
- 25 % stöðugildi vegna snemmtækrar íhlutunar inn á hverri deild
- 50% stöðugildi inn á yngstu deildir leikskóla ef fjöldi barna á aldrinum 1-2 ára eru fleiri en tíu á deild
- Hægt er að sækja um námstengda styrki til að efla faglegt leikskólastarf
- Hægt er að sækja um í þróunarsjóð leik- og grunnskóla til að stuðla að framþróun og öflugra innra starfi í leikskólum