Laus störf
Garðabær leggur áherslu á að veita íbúum bæjarins framúrskarandi þjónustu og sækist eftir að ráða til starfa metnaðarfulla og færa einstaklinga sem eru jákvæðir, faglegir og áreiðanlegir.
Kynntu þér laus störf hjá Garðabæ hér fyrir neðan.
Einungis er tekið við rafrænum umsóknum.
Þegar umsókn hefur verið send fær umsækjandi tilkynningu á skjáinn ásamt tölvupósti um að umsókn hafi borist. Öllum umsóknum um auglýst starf er svarað þegar ráðningu er lokið.
Grunnskólar
Sjálandsskóli - kennari í hönnun, smíði og nýsköpun
Sjálandsskóli auglýsir eftir kennara í hönnun, smíði og nýsköpun í 1.-10. bekk. Um er að ræða framtíðarstarf.
Sjálandsskóli er grunnskóli í Garðabæ fyrir nemendur í 1.-10. bekk. Í Sjálandsskóla er lögð áhersla á skólastarf sem einkennist af vilja og virðingu með hag nemenda að leiðarljósi.
Sækja um starfStarfshlutfallFullt starfUmsóknarfrestur1. september 2026Frístundaheimilið Sælukot - starfsmaður
Sjálandsskóli auglýsir eftir starfsmanni í hlutastarf í frístundaheimilið Sælukot. Opnunartími frístundar er frá kl. 13:00-17:00 virka daga og ráðið er í tímavinnustörf og hlutastörf. Hentar vel sem aukavinna með námi.
Sækja um starfStarfshlutfallHlutastarfUmsóknarfrestur24. ágúst 2026Frístundaheimilið Álftamýri - starfsmaður
Álftanesskóli auglýsir eftir starfsmanni í frístundaheimilið Álftamýri. Frístundastarf fer fram frá kl. 13:00 eftir að skóla lýkur og til kl. 16:30. Um eru að ræða hlutastörf sem hentar mjög vel sem aukavinna með námi.
Sækja um starfStarfshlutfallHlutastarfUmsóknarfrestur26. ágúst 2026Álftanesskóli - stuðningsfulltrúi
Álftanesskóli auglýsir eftir stuðningsfulltrúa í 100% skólaárið 2026-2027.
Álftanesskóli er grunnskóli fyrir nemendur í 1.-10. bekk. Í skólanum eru tæplega 400 nemendur og 75 starfsmenn.
Leitað er eftir einstaklingum sem eru tilbúnir að starfa að sveigjanlegu starfi í teymisvinnu samkvæmt skólastefnu Álftanesskóla.
Sækja um starfStarfshlutfallFullt starfUmsóknarfrestur26. ágúst 2026Hofsstaðaaskóli - umsjónarkennari
Hofsstaðaskóli auglýsir eftir umsjónarkennara á yngra stigi. Í skólanum verða um 460 nemendur í 1.–7. bekk og þar starfa um 95 starfsmenn með það að markmiði að hlúa að nemendum námslega og félagslega og koma til móts við áhuga þeirra og getu. Vel er búið að nemendum og starfsmönnum og er öll aðstaða í skólanum til fyrirmyndar.
Sækja um starfStarfshlutfallFullt starfUmsóknarfrestur25. ágúst 2026
Leikskólar
Kirkjuból - þroskaþjálfi
Þroskaþjálfi óskast í leikskólann Kirkjuból. Leikskólinn er þriggja deilda, staðsettur nálægt miðbæ Garðabæjar í fallegu og fjölbreyttu umhverfi. Áherslur leikskólans eru á sköpun og lífsleikni ásamt náttúru og umhverfi.
Sækja um starfStarfshlutfallFullt starfUmsóknarfrestur1. september 2026Bæjarból - deildarstjóri
Heilsuleikskólinn Bæjarból auglýsir eftir deildarstjóra á eldri deild í 100% stöðu. Leikskólinn er fjögurra deilda og þar eru börn á aldrinum 1-5 ára. Lögð er áhersla á hreyfingu, hreysti og útiveru í starfi leikskólans.
Einkunnarorð leikskólans eru: Leikur – Hreyfing – Lífsleikni
Sækja um starfStarfshlutfallFullt starfUmsóknarfrestur28. ágúst 2026
Málefni fatlaðs fólks
Skammtímadvölin Móaflöt - starfsmaður
Garðabær leitar að öflugum og áhugasömum starfsmanni til starfa á skammtímadvöl fyrir börn með fötlun. Um er að ræða fjölbreytt og gefandi starf í jákvæðu og samheldnu starfsumhverfi þar sem vellíðan barna og fagleg þjónusta eru í fyrirrúmi.
Sækja um starfStarfshlutfallHlutastarfUmsóknarfrestur4. september 2026Ungmennahraun - starfsfólk vantar
Ungmennahraun er sértækt frístundarþjónusta fyrir fötluð ungmenni á aldrinum 16-20 ára og staðsett á Álftanesi. Opnunartími Ungmennahrauns er frá 13:00-16:30 alla virka daga. Í boði eru hlutastörf og tímavinnustörf með sveigjanlegum vinnutíma eftir hádegi.
Sækja um starfStarfshlutfallHlutastarfUmsóknarfrestur24. ágúst 2026
Laun sumarstarfsfólks 2026
Hér má finna upplýsingar um laun sumarstarfsfólks 2026
Hlunnindi fyrir starfsmenn
Garðabær býður starfsfólki upp á ýmis hlunnindi. Aukin hlunnindi eru sérstaklega í boði fyrir starfsfólk leikskóla.
- Heilsuræktarstyrkur fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall að upphæð 20.000 kr. eftir 6 mánuði í starfi
- Bókasafnskort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
- Menningarkort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
- Sundlaugarkort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
- Árshátíð er starfsmönnum að kostnaðarlausu
- Íslenskunámskeið fyrir erlenda starfsmenn
Aukin hlunnindi fyrir starfsfólk leikskóla
- Forgangur á leikskóla fyrir börn starfsfólks með lögheimili í Garðabæ og í 75% starfshlutfalli eða meira
- 40% afsláttur á leikskólagjöldum fyrir starfsfólk með lögheimili í Garðabæ
- 25 % stöðugildi vegna snemmtækrar íhlutunar inn á hverri deild
- 50% stöðugildi inn á yngstu deildir leikskóla ef fjöldi barna á aldrinum 1-2 ára eru fleiri en tíu á deild
- Hægt er að sækja um námstengda styrki til að efla faglegt leikskólastarf
- Hægt er að sækja um í þróunarsjóð leik- og grunnskóla til að stuðla að framþróun og öflugra innra starfi í leikskólum