Matjurtagarðar
Garðabær býður íbúum upp á að rækta matjurtir í skipulögðum görðum yfir sumartímann. Einnig eru skólagarðar í boði fyrir börn þar sem þau fá tækifæri til að kynnast ræktun, útiveru og umgengni við náttúruna.
Veturinn 2026-2027 verður hægt að leigja matjurtakassa til 1 árs í senn í tilraunaskyni.

Matjurtagarðar - ársleiga
Veturinn 2026-2027 verður í fyrsta sinn hægt að leigja matjurtakassa til eins árs í senn í tilraunaskyni.
Stefnt er að því að opna fyrir útleigu 10. september og þá verður hlekkur í útleigu settur hér inn.
Garðbæingum gefst í fyrsta sinn kostur á að leigja matjurtakassa til ræktunar heilt ár í senn. Um er að ræða tilraunaverkefni vegna eftirspurnar fyrir þá íbúa sem vilja getað ræktað matjurtir allan veturinn, svo sem hvítlauk.
Eingöngu hluti þeirra matjurtakassa sem er í núverandi matjurtagörðum verður í ársútleigu og aðrir matjurtakassar fara í útleigu með hefðbundnum hætti fyrir sumarið 2027.
Um er að ræða eftirfarandi matjurtakassa sem fara í ársleigu:
- Í Hæðahverfi: Matjurtakassar nr B1-B9
- Á Álftanesi: Matjurtakassar nr A11-A14 (nýir kassar sem bætast við)
- Í Urriðaholti, við enda Dýjagötu: Matjurtakassar nr D1-D12
Helstu upplýsingar fyrir ársleigu
- Leigutími er frá 20. september 2026 til 15. september 2027. Leigutakar fá póst þegar hægt verður að hefja ræktun í görðunum.
- Matjurtakassar eru 2 x 4 metrar að stærð, eða 8 m², og merktir með númerum.
- Vatn til vökvunar er á öllum svæðum.
- Garðáhöld, plöntur og útsæði fylgja ekki með.
- Leiguverð fyrir ársleigu er 11.000 kr og greiðist þegar garður er tekinn á leigu.
Hver einstaklingur getur aðeins leigt einn matjurtakassa. Að leigutíma loknum þarf að taka allar matjurtir upp og skila kössunum tómum.
Matjurtagarðar í Garðabæ - sumarleiga
- Nánari upplýsingar um sumarleigu 2027 verða settar inn á vefinn vorið 2027.
Garðbæingum gefst kostur á að leigja matjurtakassa til ræktunar matjurta á sumrin. Matjurtagarðar eru staðsettir í Hæðahverfi, á Álftanesi og á tveimur stöðum í Urriðaholti.
Helstu upplýsingar
- Leigutími er frá miðjum maí til 15. október (einstaka matjurtakassar eru til 15. september). Leigutakar fá póst þegar hægt verður að hefja ræktun í görðunum.
- Matjurtakassar eru 2 x 4 metrar að stærð, eða 8 m², og merktir með númerum.
- Vatn til vökvunar er á öllum svæðum.
- Garðáhöld, plöntur og útsæði fylgja ekki með.
- Leiguverð sumarið 2026 var 5.500 kr fyrir leigu á matjurtakassa. Leiguverð fyrir sumar 2027 verður sett inn síðar.
Hver einstaklingur getur aðeins leigt einn matjurtakassa. Að leigutíma loknum þarf að taka allar matjurtir upp og skila kössunum tómum.
Hvar eru matjurtagarðarnir?

Á kortavef Garðabæjar má sjá staðsetningar matjurtagarða með því að velja Þjónustu og afþreyingu í valmynd hægra megin og haka við Matjurtagarða.
Hæðahverfi
Í Hæðahverfi eru 41 matjurtakassi í boði. Aðkoma að svæðinu er sunnan leikskólans Hæðarbóls.
Álftanes
Á Álftanesi eru 10 matjurtakassar við hlið gervigrasvallarins. Aðkoma er frá Breiðamýri.
Urriðaholt - Kauptún
Við Kauptún eru 10 matjurtakassar. Aðkoma er frá bílastæðinu í Kauptúni og göngustígur liggur að kössunum.
Urriðaholt - neðan Dýjagötu
Neðan Dýjagötu eru 47 matjurtakassar. Aðkoma er frá botnlanga Dýjagötu og Kinnargötu.
Skólagarðar í Silfurtúni
Börnum gefst tækifæri til að kynnast ræktun, útiveru og umgengni við náttúruna á lifandi og skemmtilegan hátt í Skólagörðunum í Silfurtúni. Garðarnir eru ætlaðir börnum á aldrinum 6–13 ára og eru starfræktir yfir sumartímann.
Skólagarðarnir eru staðsettir í Silfurtúni, með aðkomu við leikskólann Bæjarból. Leiðbeinandi er á staðnum til að aðstoða börnin.
Helstu upplýsingar
- Skólagarðar eru opnir á virkum dögum kl. 8:00–16:00.
- Garðarnir eru ekki daggæsla.
- Skráning fer fram á staðnum frá 2. júní.
- Greitt er efnisgjald að upphæð 5.500 kr.
- Eldra fólki býðst að leigja garð í skólagörðunum eftir 6. júní.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar veitir Garðyrkjudeild Garðabæjar í tölvupósti á smarig@gardabaer.is