Beint í efni

Ná­granna­varsla

Nágrannavarsla er ein besta forvörnin gegn innbrotum, þjófnuðum og skemmdarverkum í íbúðarhverfum.

Hvað er nágrannavarsla?

Nágrannavarsla snýst um að íbúar standi saman og hafi auga með grunsamlegum bíla- og mannaferðum. Verði íbúar varir við grunsamlegar mannaferðir er best að láta lögregluna vita með því að hringja í 112.

Áður en þú ferð í fríið

  • Láttu nágrannana vita hvenær þú áætlar að koma til baka.
  • Læstu öllum útihurðum.
  • Lokaðu gluggum og svalarhurðum og kræktu aftur.
  • Ekki geyma stiga eða verkfæri á lóðinni.
  • Hafðu útiljós kveikt og breyttu staðsetningu þeirra með tímastilli eða appi ef hægt er.
  • Ekki tilkynna um fjarveru þína frá heimili á samfélagsmiðlum.
Gott er að láta nágranna vita ef þú ferð í burtu í lengri tíma.

Það sem góður granni getur gert

  • Haft auga með grunsamlegum bíla- og mannaferðum.
  • Fylgst með að póstur safnist ekki upp í bréfalúgu.
  • Sett sorp í ruslatunnu.
  • Lagt bíl í heimreið.
  • Slegið blettinn að sumri eða mokað frá snjó að vetri.
  • Dregið öðru hvoru frá og fyrir gluggatjöld.
  • Kveikt og slökkt ljós til skiptis.

Vilt þú setja á fót nágrannavörslu?

Ef þú hefur áhuga á nágrannavörslu í þinni götu eða fjölbýlishúsi getur þú talað við nágranna þína og kannað með áhuga á virkri nágrannavörslu. Garðabær hvetur til nágrannavörslu í hverfum bæjarins með því að bjóða upp á fundi með nágrannavörslu á dagskrá.

Ef áhugi er til staðar er hægt að:

  • Stofna lokaða síðu á samfélagsmiðlum fyrir íbúa til að deila upplýsingum um góð ráð um nágrannavörslu.
  • Halda kynningarfund með nágrönnum og velja hópstjóra. Á fundinum er hægt að fara yfir góð ráð um nágrannavörslu.  
  • Hópstjóri getur haft samband við Þjónustuver Garðabæjar til að fá límmiða um nágrannavörslu sem íbúar geta sett í rúður húsa sinna.
  • Hægt er að fá skilti um nágrannavörslu ef virk nágrannavarsla er í götunni.
  • Hópstjóri getur reglulega minnt nágranna á mikilvægi góðrar nágrannavörslu, til dæmis með því að upplýsa nýja íbúa um nágrannavörsluna og deila ráðum í gegnum íbúasíðu á samfélagsmiðlum.