Beint í efni

Fyr­ir fjöl­miðla

Hér má finna merki Garðabæjar og myndir sem fjölmiðlum er frjálst að nota í umfjöllun um Garðabæ. Einnig upplýsingar um tengiliði bæjarins við fjölmiðla.

Tengiliðir

Ásta Sigrún Magnúsdóttir, samskiptastjóri Garðabæjar, svarar fyrirspurnum fjölmiðla. Hægt er að hafa samband við hana í gegnum netfangið astasigrun@gardabaer.is.

Einnig má beina fyrirspurnum til Guðnýjar Hrannar Antonsdóttur, samskipta- og kynningarfulltrúa Garðabæjar, með því að senda á gudnyan@gardabaer.is.

Sömuleiðis er hægt að senda erindi á gardabaer@gardabaer.is og verður þeim komið í réttan farveg.

Ljósmyndir af Garðabæ

1 / 6
Ljósmyndir sem fjölmiðlum er frjálst að nota.

Merki Garðabæjar

Hér má nálgast merki bæjarins í nokkrum útgáfum.

Merki Garðabæjar sýnir náttúruna í bænum okkar en það dregur fram Búrfellið, hraunið og öldur hafsins. Græni liturinn í merkinu táknar mosann sem prýðir hraunin í kringum bæinn.

Erna Ragnarsdóttir hannaði merkið árið 1976 þegar Garðabær fékk kaupstaðarréttindi. Búrfellið, hraunið og öldur hafsins veittu henni innblástur. Árið 2002 var merkið endurteiknað af Auglýsingastofu Guðrúnar Önnu til að það fylgdi reglum um skjaldarmerki. Einkaleyfastofan skráði merkið svo formlega þann 11. febrúar 2003.

Merki Garðabæjar var sett í afmælisbúning í tilefni 50 ára afmælis bæjarins. Sítrus hönnunarstofa gerði nýja afmælismerkið.