Beint í efni

Öld­ung­aráð

Öldungaráð er formlegur samstarfsvettvangur þar sem fjallað er um málefni og þjónustu við eldra fólk. Öldungaráð á að fylgjast með heilsufari og félagslegri velferð eldra fólks í Garðabæ og gera tillögur til bæjarstjórnar um þjónustuna.

Hlutverk og helstu verkefni

  • Að vera bæjarstjórn og ráðum Garðabæjar til ráðgjafar í málefnum eldra fólks.
  • Að fylgjast með stefnumótun og þróun hugmyndafræði þjónustu við eldra fólk og gera tillögur að breytingum á þjónustu bæjarins.
  • Að eiga í samráði við eldra fólk, hagsmunaaðila og íbúa í bænum um málefni eldra fólks.

Fulltrúar í öldungaráði Garðabæjar

  • Harpa Rós Gísladóttir (D), formaður,
  • Eysteinn Haraldsson (D)
  • Sveinbjörg Vilhjálmsdóttir (G)
  • Anna Möller, tilnefnd af Félagi eldri borgara í Garðabæ
  • Laufey Jóhannsdóttir, tilnefnd af Félagi eldri borgara í Garðabæ
  • Sæbjörg Einarsdóttir, tilnefnd af Félagi eldri borgara á Álftanesi
  • Margrét Björnsdóttir, tilnefnd af Heilsugæslunni í Garðabæ

Viltu vita meira um öldungarráð?

Þú getur haft samband við Þóru Gunnarsdóttur, forstöðumann stuðnings- og öldrunarþjónustu Garðabæjar, í síma 512 1559 eða með tölvupósti á thoragunn@gardabaer.is