Eldra fólk
Markmiðið er að eldra fólk í Garðabæ geti búið sjálfstætt sem lengst. Í boði er félagsstarf, hreyfing og fjölbreytt þjónusta.
Stuðningsþjónusta
Stuðningsþjónustan styður meðal annars við heimilishald og persónulega umhirðu, auk þess að fá heimsendingu á mat í hádeginu. Markmið okkar er að styðja við fólk og efla getu þess til að búa á eigin heimili.
Félagslegar leiguíbúðir fyrir 60 ára og eldri
Garðabær býður upp á húsnæði fyrir fólk, 60 ára og eldra. Markmiðið er að tryggja öruggt húsnæði sem hentar þörfum hvers og eins.
Við Kirkjulund 6 og 8 eru fjórar félagslegar leiguíbúðir í eigu Garðabæjar sem eru leigðar eldra fólki í bænum.
Ráðgjöf og upplýsingar
Þú getur fengið upplýsingar um stuðningsþjónustu hjá ráðgjöfum í síma 525 8500 eða á netfanginu heimathjonusta@gardabaer.is.
Eins er hægt að bóka tíma hér: Símatími ráðgjafa
Einnig má hafa beint samband við ráðgjafa með tölvupósti:
- Þóra Gunnarsdóttir, forstöðumaður stuðnings-og öldrunarþjónustu Garðabæjar. Netfang: thoragunn@gardabaer.is.
- Gyða María Marvinsdóttir, ráðgjafi í stuðnings- og öldrunarþjónustu. Netfang: gydama@gardabaer.is.
- Sandra Jónsdóttir, félagsráðgjafi. Netfang: sandrajonsdo@gardabaer.is.
Tengt efni

Afsláttur af fasteignaskatti og holræsagjaldi
Elli- og örorkulífeyrisþegar fá afslátt af fasteignaskatti og holræsagjaldi. Afslátturinn ræðst af ákveðnum upphæðum sem bæjarráð hefur samþykkt.

Garðakortið – aðgangskort í sundlaugar
Eldra fólk (67 ára og eldri) og öryrkjar fá ókeypis í sund í Garðabæ með Garðakortinu.
Opið 11:00-15:00 í dagBókasafn Garðabæjar
Bókasafn Garðabæjar er öllum opið. Það er á tveimur stöðum í Garðabæ; aðalsafnið á Garðatorgi 7 og Álftanessafnið sem er rekið með skólasafni Álftanesskóla við Eyvindarstaðaveg.OpnunartímiVirka daga: 09:00 - 19:00
Laugardaga: 11:00 - 15:00