Bókasafn Garðabæjar
Bókasafn Garðabæjar er almenningsbókasafn sem er öllum opið. Það er á tveimur stöðum í Garðabæ; aðalsafnið á Garðatorgi 7 og Álftanessafnið sem er rekið með skólasafni Álftanesskóla við Eyvindarstaðaveg.

Bókasafn Garðabæjar
Garðatorg 7
Sími: 591 4550
Netfang: bokasafn@gardabaer.is
Opnunartími
Virka daga: 09:00 - 19:00
Laugardaga: 11:00 - 15:00
Upplýsinga- og menningarmiðstöð
Nýr vefur Bókasafns Garðabæjar er í þróun og verður opnaður síðar á árinu.
Bókasafnið er upplýsinga- og menningarmiðstöð sem veitir aðgang að ríkulegu bókaúrvali, gögnum og miðlum til fræðslu og afþreyingar. Bókasafnið býður upp á fjölbreytta og lifandi dagskrá og stendur fyrir fjölda viðburða ár hvert.
Fjölbreyttir viðburðir bókasafnsins:
Aðstaðan
Gestir safnsins hafa aðgang að bókum og öðru efni til útleigu og þráðlausu neti á báðum söfnum. Á aðalsafni hafa gestir aðgang að tölvum, prentara, ljósritun, vínylprentara, þrívíddarprentara og saumavél. Á 2. hæð safnsins er lesstofa, þar eru nokkrir lesbásar, hópvinnuborð og nóg af innstungum fyrir fartölvur. Á bókasafninu er einnig næðisklefi sem gestir geta fengið afnot af endurgjaldslaust í allt að tvær klukkustundir í senn. Þó er nauðsynlegt er að skrá sig í afgreiðslunni eða á netfangið: bokasafn@gardabaer.is.
Lifandi Bókasafn








Álftanessafn
Álftanessafn er rekið með skólasafni Álftanesskóla við Eyvindarstaðaveg.
Viðburðadagatal
Tölvu og tækniaðstoð
Starfsfólk safnsins býður uppá margvíslega tækniaðstoð fyrir hinn venjulega notanda.
Viðburðir04.11.2026Bókasafn Garðabæjar, Garðatorgi 7
miðvikudagur, 4. nóvember 2026 kl. 10:00 - 11:00
Jólabókaspjall Bókasafns Garðabæjar
Þá er komið að því, hið árlega Jólabókaspjall Bókasafns Garðabæjar. Rithöfundar lesa úr nýjustu verkum sínum og við höldum fjörugar umræður um skáldverkin, lífið og tilveruna. Boðið verður upp á léttar veitingar, huggulegheit og að sjálfsögðu ekta jólastemningu.
Viðburðir05.11.2026Bókasafn Garðabæjar, Garðatorgi 7
fimmtudagur, 5. nóvember 2026 kl. 19:30 - 21:00
Sögur og söngur með Þórönnu Gunný
Þóranna syngur með börnunum helstu leikskólalögin og fær hópinn til að dansa með
Viðburðir07.11.2026Bókasafn Garðabæjar, Garðatorgi 7
laugardagur, 7. nóvember 2026 kl. 11:15 - 12:00
Garðaprjón - hannyrðaklúbbur opinn öllum áhugasömum
Hannyrðaklúbburinn er opin fyrir öll og við hvetjum fólk til þess að koma, bæði reynslubolta og þau sem eru að taka sín fyrstu skref í prjónaskap.
Viðburðir10.11.2026Bókasafn Garðabæjar, Garðatorgi 7
þriðjudagur, 10. nóvember 2026 kl. 17:00 - 18:45
Foreldramorgunn: Skynjunarleikur með Plánetunni
Pláneta býður litlum krílum að stinga sér til leiks í grípandi skynjunarupplifun!
Viðburðir12.11.2026Bókasafn Garðabæjar, Garðatorgi 7
fimmtudagur, 12. nóvember 2026 kl. 10:00 - 12:00
Garðaprjón - hannyrðaklúbbur opinn öllum áhugasömum
Hannyrðaklúbburinn er opin fyrir öll og við hvetjum fólk til þess að koma, bæði reynslubolta og þau sem eru að taka sín fyrstu skref í prjónaskap.
Viðburðir24.11.2026Bókasafn Garðabæjar, Garðatorgi 7
þriðjudagur, 24. nóvember 2026 kl. 17:00 - 18:45
Gjaldskrá Bókasafns Garðabæjar
Liður | Gjald (kr.) |
|---|---|
Ársgjald (18–67 ára) | 2.900 |
Ársgjald (börn/eldri/öryrkjar/atvinnulausir/hælisleitendur 1. ár) | 0 |
Nýtt bókasafnskort (týnt/stolið) | 810 |
Dagsektir (bók/tímarit/mynddiskur/hljóðbók/geisladiskur) | 50 |
Dagsektir (tölvuleikur/spil/búnaður/þemapoki) | 200 |
Ljósrit/prentun A4 | 60 |
Ljósrit/prentun í lit A4 | 120 |
Ljósrit/prentun A3 | 120 |
Ljósrit/prentun í lit A3 | 240 |
Skönnun | 0 |
3D prentun (hver byrjaður meter) | 100 |
Fjölnota pokar | 520 |
Tjón/bætur | Gjald |
|---|---|
Glataður/skemmda myndiskur | 4.800 |
Millisafnalán – póstgjald | |
Glatað/skemmda gagn/bók | Innkaupaverð í verslun |
Forsendur og skýringar
• Gildir frá 1. janúar 2026.
• Millisafnalán: póstgjald fram og til baka greiðist af notanda.