Menning og listir
Menningarlífið í Garðabæ er í miklum blóma. Fjölmargir áhugaverðir og fjölbreyttir menningarviðburðir eru haldnir í bænum á hverju ári.

Söfn
Opið 09:00-19:00 í dagBókasafn Garðabæjar
Bókasafn Garðabæjar er upplýsinga- og menningarmiðstöð sem veitir aðgang að ríkulegu bókaúrvali, gögnum og miðlum til fræðslu og afþreyingar. Bókasafnið býður upp á fjölbreytta og lifandi dagskrá og stendur fyrir fjölda viðburða ár hvert.
OpnunartímiVirka daga: 09:00 - 19:00
Laugardaga: 11:00 - 15:00
Opið 12:00-17:00 í dagHönnunarsafn Íslands
Hönnunarsafn Íslands er til húsa á Garðatorgi 1 og stendur fyrir fræðslustarfi og metnaðarfullri dagskrá þar sem flestir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi.
OpnunartímiÞriðjudaga til sunnudaga: 12:00-17:00
Mánudagar: Lokað
Opið 12:00-17:00 í dagAftur til Hofsstaða
OpnunartímiMargmiðlunarsýningin Aftur til Hofsstaða á Garðatorgi 7.

Bæjarlistamaður Garðabæjar
Frá árinu 1992 hefur Garðabær veitt starfsstyrki til listamanna. Útnefning bæjarlistamanns fer fram að vori við hátíðlega athöfn.

Menningarstyrkir
Markmið menningarstyrkja er að styðja einstaklinga og félagasamtök við lista- og menningarsköpun og efla listalíf Garðabæjar enn frekar.
Næstu viðburðir
Íbúafundir: Hvað er að frétta í Garðabæ?
Árlegir íbúafundir í Garðabæ verða haldnir í október.
Viðburðir14.10.2026Garðabær
miðvikudagur, 14. október 2026 kl. 19:30
Bókarabb með Garðbæingum í tilefni af 50 ára afmæli Garðabæjar
Garðbæingarnir Eliza Reid, Björn Thors og Katrín Júlíusdóttir koma í bókarabb á Bókasafn Garðabæjar á Garðatorgi 7.
Viðburðir15.10.2026Bókasafn Garðabæjar
fimmtudagur, 15. október 2026 kl. 18:00 - 19:30
Krassandi drekasmiðja með Iðunni Örnu - Barnamenningarhátíð í Garðabæ
Krassandi drekasmiðja fyrir börn á aldrinum 5-8 ára með Iðunni Örnu myndhöfundi og skapara Bókasafnsdrekans okkar. Hér geta börn látið ímyndunaraflið fljúga hátt.
Viðburðir17.10.2026Bókasafn Garðabæjar
laugardagur, 17. október 2026 kl. 11:30 - 12:00
Að galdra fram glænýja heima - Barnamenningarhátíð í Garðabæ
Orð eru ævintýri. Rithöfundurinn Arndís Þórarinsdóttir býður framtíðar rithöfundum á aldrinum 8-12 ára í skemmtilega ritsmiðju þar sem þátttakendur fá að skapa nýja heima, furðulegar persónur og óvænt ævintýri.
Viðburðir17.10.2026Bókasafn Garðabæjar
laugardagur, 17. október 2026 kl. 11:30 - 13:00



