Beint í efni

Menn­ing­ar­styrk­ir

Markmið menningarstyrkja er að styðja einstaklinga og félagasamtök við lista- og menningarsköpun og efla listalíf Garðabæjar enn frekar. 

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar hefur umsjón með menningarstyrkjum.

Tekið er við umsóknum um menningarstyrki allt árið um kring en nefndin auglýsir eftir og afgreiðir umsóknir tvisvar á ári. Umsóknarfrestur fyrir fyrri úthlutun er til 15. janúar og til 1. október fyrir seinni úthlutun. Umsóknum skal skila í gegnum Þjónustugátt Garðabæjar. 

Listamenn, félagasamtök, stofnanir eða menningarviðburðir verða að tengjast Garðabæ með einhverjum hætti. Einstaklingar með lögheimili í bænum geta sótt um menningarstyrk og verða verkefni að tengjast Garðabæ með einum eða öðrum hætti.

Allar reglur um menningarstyrki má nálgast hér fyrir neðan.