Hinsegin hittingur
Torgið ungmennahús, Garðatorgi
miðvikudagur, 25. nóvember 2026 kl. 19:00 - 22:00

Félagsmiðstöðvarnar í Garðabæ ætla í samvinnu að bjóða upp á sameiginlegan hitting fyrir hinsegin ungmenni í 8.–10. bekk.
Hittingurinn verður haldinn alla miðvikudaga kl. 19:00–22:00 í húsnæði Torgsins á Garðatorgi, fyrst haldið miðvikudaginn 18. nóvember nk.
Markmiðið með þessu nýja starfi er að skapa öruggt, hlýlegt og fordómalaust umhverfi þar sem öll ungmenni geta verið þau sjálf, myndað ný vinatengsl og upplifað að þau tilheyri samfélaginu.
Á hittingunum verður lögð áhersla á notalega samveru, spjall, leiki og fjölbreytta afþreyingu þar sem ungmennin sjálf fá tækifæri til að hafa áhrif á dagskrána og móta starfið eftir sínum áhuga og þörfum.
Hvar: Torgið á Garðatorgi
Hvenær: Alla miðvikudaga kl. 19:00–22:00 (fyrsti hittingur 18. nóvember)
Fyrir hverja: Öll ungmenni í 8.–10. bekk í Garðabæ