Jazzþorpið í Garðabæ
Jazzþorpið fer fram fyrstu helgina í maí á Garðatorgi.

Jazzþorpið fer fram fyrstu helgina í maí á Garðatorgi. Hátíðin var fyrst haldin árið 2023. Listrænn stjórnandi Jazzþorpsins er Ómar Guðjónsson sem vinnur náið með menningarfulltrúa Garðabæjar.
Margir af bestu jazztónlistarmönnum landsins koma fram í Jazzþorpinu, flytja tónlist og halda erindi. Samstarf við Góða hirðinn er einn af lykilþáttum í að gera þorpið að ævintýraveröld þar sem fólk á öllum aldri kemur saman en húsgögn og smámunir eru seld til styrktar góðu málefni. Annað einkenni Jazzþorpsins eru marglitar kúlur sem skreyta loftið á göngugötunni meðan á hátíðinni stendur. Upplifunarhönnuðir þorpsins eru Kristín Guðjónsdóttir og Halla Kristjánsdóttir en Hans Vera sér um smíðavinnu og ljósmyndun.
Jazzþorpið verður með stærra sniði í ár í tilefni 50 ára afmælis Garðabæjar. Hátíðin mun standa yfir dagana 30. apríl til 3. maí.
Jazzþorpið 2025












Var efnið hjálplegt?
Hvað þarf að laga?
Vinsamlegast tilgreindu hvað mætti fara betur.