Beint í efni

Jóla­sápu­smiðja

Viðburðir

Hönnunarsafn Íslands

laugardagur, 28. nóvember 2026 kl. 03:00 - 15:00

Fjölskylduviðburður með URÐ.

Hefjum aðventuna með því að gera okkar eigin jólasápu í smiðju með URÐ á Hönnunarsafni Íslands. Kannski geturðu búið til fyrstu ilmandi jólagjöf ársins? Eða byrjað að undirbúa jólabaðið í góðan tíma! Smiðjan er liður í Aðventuhátíð Garðabær.

Smiðjan er leidd af URÐ sem hafa vakið verðskuldaða athygli fyrir handgerðar sápur sínar og eru leiðandi ilm- og húðvöruhús. Nafnið URÐ er fornt íslenskt orð sem merkir jörð eða hrjóstrugt landslag. Nafnið vísar þannig í hráefnin sem við notum við framleiðslu varanna. Hjá URÐ samræma villt náttúruöfl Íslands við fágaða ilmhefð Grasse í Frakklandi.