Beint í efni

Hönn­un­ar­safn Ís­lands

Hönnunarsafn Íslands var stofnað árið 1998 og er rekið af Garðabæ. Safninu er ætlað að sýna, skrá og varðveita íslenska hönnunarsögu. 

Hönnunarsafn Íslands er til húsa á Garðatorgi 1 og stendur fyrir fræðslustarfi og metnaðarfullri dagskrá þar sem flestir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. 

Safnið er vettvangur fyrir bæði stórar og smærri sýningar, opnar smiðjur, fyrirlestra og rannsóknarvinnu. Á safninu er líka aðstaða fyrir hönnuði til að dvelja í vinnustofudvöl og starfa fyrir opnum tjöldum og veita gestum innsýn inn í sköpunarferlið. 

Safnahúsinu er skipt í sex rými með mismunandi áherslur og möguleika. Í anddyri Hönnunarsafns Íslands er glæsileg safnabúð sem býður upp á fjölbreytt úrval vandaðrar hönnunarvöru og bóka sem tengjast sýningum safnsins. 

Hönnunarsafn Íslands er opið alla daga vikunnar að mánudögum undanskildum, opnunartími er 12-17. 

Það er alltaf mikið um að vera á Hönnunarsafni Íslands, hægt er að nálgast dagskrána hverju sinni á vef og samfélagsmiðlum safnsins. 

Opnunartími

Þriðjudaga til sunnudaga: 12:00-17:00
Mánudagar: Lokað

Opið í dag frá 12:00 til 17:00