Bæjarlistamaður Garðabæjar
Frá árinu 1992 hefur Garðabær veitt starfsstyrki til listamanna.

Menningar- og safnanefnd gerir tillögur til bæjarstjórnar um úthlutun og koma aðeins til greina þeir listamenn sem búsettir eru í Garðabæ.
Útnefning bæjarlistamanns fer fram að vori við hátíðlega athöfn. Við sama tilefni er listamanni í Garðabæ veitt heiðursviðurkenning fyrir starf í þágu menningar og ungmennum veittur styrkur.
Bæjarlistamenn Garðabæjar
2025 Tinna Þorsteinsdóttir píanóleikari
2024 Hans Jóhannsson fiðlusmíðameistari
2023 Gunnsteinn Ólafsson hljómsveitar- og kórstjóri, tónskáld og frumkvöðull.
2022 Birgitta Haukdal söngkona og barnabókahöfundur
2021 Unnur Ösp Stefándóttir leikstjóri, höfundur og leikari og Björn Thors leikari
2020 Bjarni Thor Kristinsson óperusöngvari
2019 Bjarni M. Bjarnason rithöfundur
2018 María Magnúsdóttir, söngkona og tónskóld
2017 Pétur Jóhann Sigfússon, leikari, handritshöfundur og grínisti
2016 Andrea Magnúsdóttir fata- og tískuhönnuður
2015 Karólína Eiríksdóttir tónskáld
2014 Soffía Sæmundsdóttir myndlistarmaður
2013 Ingibjörg Guðjónsdóttir söngkona
2012 Þórunn Erna Clausen leikkona
2011 Ómar Guðjónsson tónlistarmaður
2010 Agnar Már Magnússon tónlistarmaður
2009 Laufey Jensdóttir myndlistarmaður
2008 Jóhann Sigurðarsson, leikari
2007 Karl Ágúst Úlfsson, leikari, leikstjóri og rithöfundur
2006 Rúnar Helgi Vignisson rithöfundur og þýðandi
2005 Sigurður Flosason tónlistarmaður
2004 Þuríður Sigurðardóttir myndlistarmaður og söngkona
2003 Erling Jóhannesson, leikari og leikstjóri og Hallfríður Ólafsdóttir flautu- og pikkólóleikari
2002 Björn Thoroddsen tónlistarmaður
2001 Kristín Helga Gunnarsdóttir rithöfundur
2000 Jónína Magnúsdóttir myndlistarmaður og Peter Tompkins tónlistarmaður
1999 Margrét Ólafsdóttir leikari og Steindór Hjörleifsson leikari
1998 Árni Elfar tónlistar- og myndlistarmaður
1997 Ármann Helgason tónlistarmaður og Guðrún E. Ólafsdóttir myndlistarmaður
1996 Arngunnur Ýr Gylfadóttir myndlistarmaður og Guðfinna Dóra Ólafsdóttir kórstjóri
1995 Hildigunnur Halldórsdóttir tónlistarmaður og Sigrún Waage leikari
1994 Edda Jónsdóttir myndlistarmaður og Ragnheiður Jónsdóttir myndlistarmaður
1993 Sigríður Sigurjónsdóttir listhönnuður
1992 Bryndís Halla Gylfadóttir sellóleikari og Pétur Bjarnason myndlistarmaður
Bæjarlistamaður Garðabæjar 2025











Reglur um styrk til bæjarlistamanns

1. gr.
Bæjarstjórn Garðabæjar veitir árlega styrk til bæjarlistamanns eða bæjarlistamanna eftir því sem nánar er ákveðið hverju sinni við gerð fjárhagsáætlunar.
2. gr.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar skal gera tillögu til bæjarstjórnar um veitingu styrkja til bæjarlistamanns eða bæjarlistamanna, og skal við það miðað, að tillögur berist bæjarstjórn í maímánuði ár hvert.
3. gr.
Menningar- og safnanefndnefnd skal auglýsa eftir eða óska eftir rökstuddum ábendingum frá einstaklingum eða samtökum listamanna um útnefningu bæjarlistamanns Nefndin er þó ekki bundin af slíkum ábendingum.
4. gr.
Þeir listamenn einir koma til greina við úthlutun styrkja, sem lögheimili eiga í Garðabæ og hafa haft þar fasta búsetu í a.m.k. tólf mánuði.
5. gr.
Úthlutun starfsstyrks skal að jafnaði fara fram árlega.
6. gr.
Styrkurinn skal nema þeirri fjárhæð, sem bæjarstjórn ákveður hverju sinni við gerð fjárhagsáætlunar.
7. gr.
Bæjarstjórn áskilur sér rétt til þess að styrkþegi leggi fram greinargerð um ráðstöfun styrkjarins, verði eftir því leitað. Greinargerðin getur verið í því formi, að styrkþegi leggi fram texta í rituðu máli eða flytji eða lesi upp verk í frumflutningi eða til frumbirtingar, allt eftir nánara samkomulagi við menningar- og safnanefnd hverju sinni. Ekki skal gert ráð fyrir sérstakri greiðslu fyrir framlagningu eða flutning samkvæmt grein þessari, en styrkþegi heldur höfundarrétti sínum óskertum í samræmi við ákvæði laga um höfundarrétt.
Samþykkt í bæjarstjórn 12. apríl 2012
Hvatningarsjóður fyrir unga hönnuði og listamenn
Ungt listafólk í Garðabæ á aldrinum 15-25 ára getur sótt um styrk úr Hvatningarsjóði.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar kallar árlega eftir umsóknum frá einstaklingum og hópum á aldrinum 15—25 ára sem vilja auðga menningarlíf í Garðabæ.
Styrkir úr Hvatningasjóði eru veittir við sama tilefni og þegar bæjarlistamaður Garðabæjar er útnefndur.
1. gr.
Í samræmi við fjárhagsáætlun Garðabæjar hverju sinni skal árlega veita styrki til ungra hönnuða og listamanna í Garðabæ til að efla þá og hvetja til frekari sköpunar. Menningar- og safnanefnd Garðabæjar skal úthluta styrkjunum við sérstaka athöfn.
2. gr.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar auglýsir eftir umsóknum um styrkina. Auglýst skal eftir umsóknum á vorönn. Hægt er að sækja um styrk á þar til gerðu umsóknareyðublaði.
3. gr.
Einstaklingar og hópar geta sótt um styrk í hvatningarsjóðinn til hvers kyns viðburða eða verkefna á þessu ári og næsta ári. Styrkur er ekki ætlaður til náms. Tekið verður sérstaklega tillit til verkefna/viðburða sem fara fram í Garðabæ og eru til þess fallnir að efla menningarlíf bæjarins. Á umsóknareyðublaði verður nánari útlistun á hvaða gögn þurfa að fylgja með umsóknum s.s. meðmæli, kostnaðaráætlun o.fl. Þá skal styrkþegi tilkynna menningarfulltrúa um breytingar á kostnaðar- og tímaáætlun ef við á og skila inn greinargerð um verkefnið að verkefninu loknu.
4. gr.
Þeir einstaklingar koma til greina við úthlutun styrkja sem hafa fasta búsetu (lögheimili) í Garðabæ og eru á aldrinum 15-25 ára. Hópar sem fá styrk verða að vera samansettir af einstaklingum þar sem meirihluti hefur fasta búsetu í Garðabæ. Heimilt er að víkja frá þessum viðmiðum í undantekningartilfellum. Menningar- og safnanefnd getur einnig úthlutað styrkjum til einstaklinga eða hópa án þess að viðkomandi hafi sótt um styrk.
5. gr.
Heildarupphæð styrkja miðast við fjárhagsáætlun hverju sinni. Menningar- og safnanefnd ákveður fjölda styrkja og upphæðir miðað við fyrirliggjandi umsóknir hverju sinni. Menningar- og safnanefnd ákveður úthlutun úr hvatningarsjóðnum. Menningarfulltrúi Garðabæjar ásamt ungmennaráði Garðabæjar fer yfir umsóknir og veitir menningar- og safnanefnd umsögn um þær.
6. gr.
Reglur þessar skulu endurskoðaðar árlega.
Reglur þessar voru samþykktar á fundi bæjarstjórnar Garðabæjar 3. mars 2022.
Var efnið hjálplegt?
Hvað þarf að laga?
Vinsamlegast tilgreindu hvað mætti fara betur.