Beint í efni

Álfta­nes­safn

Bókasafn Garðabæjar er almenningsbókasafn sem er öllum opið. Það er á tveimur stöðum í Garðabæ; aðalsafnið á Garðatorgi 7 og Álftanessafnið sem er rekið með skólasafni Álftanesskóla við Eyvindarstaðaveg. 

Álftanessafn

Álftanesskóli, Eyvindarstaðarvegur
Sími: 591 4560
Netfang: alftanessafn@gardabaer.is

Opnunartími

Lokað í dag

Upplýsinga- og menningarmiðstöð

Nýr vefur Bókasafns Garðabæjar er í þróun og verður opnaður síðar á árinu.

Bókasafnið er upplýsinga- og menningarmiðstöð sem veitir aðgang að ríkulegu bókaúrvali, gögnum og miðlum til fræðslu og afþreyingar. Bókasafnið býður upp á fjölbreytta og lifandi dagskrá og stendur fyrir fjölda viðburða ár hvert.

Opnunartími á Álftanessafni:

Opið mánudaga til fimmtudaga: 14:00–18:00
Á völdum laugardögum yfir árið: 12:00–15:00

Opnunartími á sumrin (15. júní til 15. ágúst)

Opið miðvikudaga og fimmtudaga: 14:00–18:00

Aðstaðan

Gestir safnsins hafa aðgang að bókum og öðru efni til útleigu og þráðlausu neti.

Starfsfólk leggur sig fram við að bjóða upp á spennandi safnkost, faglega upplýsingaþjónustu, skemmtilega og fjölbreytta viðburðadagskrá. Ýmis gögn og hlutir eru lánaðir út af bókasafninu auk bóka og tímarita, til dæmis ýmsar tegundir af spilum, Playstation leikir og Nintendo leikir. Hægt er að fá Nintendo Switch leikjatölvu að láni á fullorðinsskírteini. Einnig eru borðspil, barnaspil, teningaspil, sígild spil og hlutverkaspil.

Starfsfólk tekur vel á móti nýjum hugmyndum og er tilbúið að styðja við og taka þátt í alls konar verkefnum sem eiga heima á bókasafninu og samlagast gildum þess.