Beint í efni

Stuðn­ings­þjón­usta

Stuðningsþjónusta er fyrir fólk sem býr á eigin heimili og þarf stuðning vegna skertrar getu, fötlunar, fjölskylduaðstæðna, álags eða veikinda.

Markmið stuðningsþjónustu

Markmið stuðningsþjónustu er að aðstoða fólk sem þarf vegna aðstæðna sinna á stuðningi að halda við athafnir daglegs lífs, heimilishald eða til að rjúfa félagslega einangrun. Þjónustan stefnir að því að efla fólk til sjálfshjálpar þannig að það geti búið sem lengst heima.

Fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir nýtur þjónustu á grundvelli reglna Garðabæjar um stoðþjónustu fyrir fatlað fólk.

Athugið að Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins sér um hjúkrun og endurhæfingu. Sjá meira um heimahjúkrun.

Sækja um stuðningsþjónustu

Þú sækir um stuðningsþjónustu í Þjónustugátt Garðabæjar eða skilar umsóknareyðublaði til þjónustuvers Garðabæjar. Umsóknin er afgreidd þegar öll fylgigögn hafa borist.

Ferli umsóknar 

Eftir að þú hefur sótt um stuðningsþjónustu hafa ráðgjafar á velferðarsviði samband og finna tíma fyrir heimsókn. Ráðgjafi metur í samráði við þig hvaða stuðning þú þarft og veitir upplýsingar um hvaða þjónusta er í boði og hentar þér. Þegar mat á stuðningsþörf liggur fyrir er umsóknin tekin fyrir á afgreiðslufundi velferðarsviðs.

Ráðgjöf og upplýsingar

Þú getur fengið upplýsingar um stuðningsþjónustu hjá ráðgjöfum í síma 525 8500 eða á netfanginu heimathjonusta@gardabaer.is

Einnig má hafa beint samband við ráðgjafa með tölvupósti: