Fatlað fólk
Fatlað fólk á rétt á þjónustu og stuðningi sem þarf til að lifa sjálfstæðu lífi og taka virkan þátt í samfélaginu.

Þjónusta við fatlað fólk
Garðabær veitir margvíslega þjónustu fyrir fatlað fólk, bæði á heimilum og utan þeirra. Þjónustan miðar að því að tryggja fötluðu fólki jafnrétti og skapa því skilyrði til að lifa eðlilegu lífi og taka virkan þátt í samfélaginu. Fatlað fólk á rétt á allri almennri þjónustu bæjarins. Þegar þjónustuþörf er meiri er boðið upp á sértæka þjónustu.
Hverjir eiga rétt á þjónustu?
Fatlað fólk sem þarf á stuðningi að halda vegna andlegrar eða líkamlegrar fötlunar á rétt á þjónustu. Þessi þjónusta er veitt í kjölfar mats á stuðningsþörfum.
Sækja um þjónustu
Þú getur sótt um viðeigandi þjónustu á Þjónustugátt Garðabæjar.
Þjónusta við fatlað fólk byggist á lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir.
Stuðningsþjónusta
Stuðningsþjónustan styður meðal annars við heimilishald og persónulega umhirðu. Markmið okkar er að styðja við fólk og efla getu þess til að búa á eigin heimili.
Ráðgjöf og upplýsingar
Hægt er að sækja um ráðgjöf beint í Þjónustugátt Garðabæjar. Einnig er velkomið að leita eftir upplýsingum um þjónustu við fatlað fólk hjá sérfræðingum á velferðarsviði:
- Pála Marie Einarsdóttir: Deildarstjóri í málefnum fatlaðs fólks. Netfang: palaei@gardabaer.is.
- Hjörtfríður St. Guðlaugsdóttir: Ráðgjafaþroskaþjálfi í málefnum fatlaðs fólks. Netfang: hjortfridurgu@gardabaer.is.
- Margrét Ósk Gunnarsdóttir. Ráðgjafaþroskaþjálfi í málefnum fatlaðs fólks. Netfang: margretosk@gardabaer.is.
Einnig er hægt að fá svör við spurningum með því að hafa samband við þjónustuver Garðabæjar:
- Sími: 525 8500
- Netfang: gardabaer@gardabaer.is
Réttindagæsla fatlaðs fólks
Réttindagæslan aðstoðar fatlað fólk við að ná fram rétti sínum þegar réttindi þess eru ekki tryggð eða þau brotin.
Var efnið hjálplegt?
Hvað þarf að laga?
Vinsamlegast tilgreindu hvað mætti fara betur.