Beint í efni

Heim­ili og bú­setu­kjarnar

Garðabær rekur búsetukjarna og heimili sem eru hönnuð með þarfir fatlaðs fólks í huga.

Húsnæði fyrir fatlað fólk

Sértækt húsnæði er fyrir fatlað fólk með miklar stuðningsþarfir sem getur ekki séð sér fyrir húsnæði á annan hátt. Húsnæðið er hugsað fyrir þau sem þurfa mikla aðstoð og stuðning til að búa á eigin heimili.

Sækja um húsnæði

Þú sækir um sértækt húsnæði í Þjónustugátt Garðabæjar.

Þú getur aðeins sótt um eina tegund af félagslegu leiguhúsnæði í einu. Ráðgjafar á velferðarsviði leiðbeina þér varðandi umsókn um húsnæði.

Hver getur sótt um?

Til að umsókn sé samþykkt á biðlista eftir sértæku húsnæðisúrræði þarftu að uppfylla eftirfarandi:

Heimili fyrir fatlað fólk

Garðabær rekur heimili fyrir fatlað fólk á eftirfarandi stöðum:

  • Miðskógum 22. Forstöðumaður er Lilja Guðmundsdóttir. Sími: 565 4525.
  • Krókamýri 54. Forstöðumaður er Ingibjörg Friðriksdóttir. Sími: 565 9505.
  • Ægisgrund 19. Forstöðumaður er Ásta Kristinsdóttir. Sími 565 8130
  • Sigurhæð 12 (fyrir börn). Forstöðumaður er Hlöðver Sigurðsson. Sími: 544 4700.

Búsetukjarnar

Fólk með fötlun sem hefur þörf á sérstöku húsnæði og mikinn stuðning getur sótt um íbúð í búsetukjarna. Þar fær fólk þjónustu eftir sínum þörfum allan sólarhringinn.

  • Búsetukjarni Unnargrund 2. Forstöðumaður er Jóna Jóhanna Sveinsdóttir. Sími: 414 0555.
  • Búsetukjarni Brekkuás 2. Forstöðumaður er Sunna Líf Kristjánsdóttir. Sími 414 0532.