Beint í efni

Sam­ráðs­hóp­ur um mál­efni fatl­aðs fólks

Samráðshópur um málefni fatlaðs fólks (Notendaráð) er formlegur samráðsvettvangur þar sem fjallað er um þjónustu við fatlað fólk og framkvæmd og þróun þjónustunnar.

Samráðshópurinn er skipaður samkvæmt 2. mgr. 42. gr. laga um félagsþjónustu sveitafélaga nr. 40/1991.

Hvað gerir samráðshópurinn?

Hópurinn veitir bæjarstjórn og stofnunum ráðgjöf um skipulag og framkvæmd þjónustunnar. Markmiðið með starfinu er að bæta þjónustu við fatlað fólk í Garðabæ með virkri aðkomu þeirra að skipulagi og framkvæmd þjónustunnar í samstarfi við bæjarstjórn.

Samráðshópur um málefni fatlaðs fólks er skipaður samkvæmt 2. mgr. 42. gr. laga um félagsþjónustu sveitafélaga.

Fulltrúar í samráðshópi 2022–2026

Í ráðinu sitja 6 fulltrúar og ritari.

  • 3 fulltrúar kosnir af bæjarstjórn.
  • 3 fulltrúar eru tilnefndir af hagsmunasamtökum fatlaðs fólks.
  • Ritari er starfsmaður velferðarsviðs Garðabæjar.

Kosið er til fjögurra ára.

  • Kristín Einarsdóttir - formaður, kjörin af bæjarstjórn (D)
  • Sveinbjörn Halldórsson - kjörinn af bæjarstjórn (D)
  • Hjördís Guðmundsdóttir - kjörin af bæjarstjórn (B)
  • Bergþóra Bergsdóttir - tilnefnd af ÖBÍ
  • Elín Björg Ásbjörnsdóttir - tilnefnd af Landsamtökunum Þroskahjálp

Viltu vita meira um samráðshópinn?

  • Þú getur haft samband við Pálu Marie Einarsdóttir, deildarstjóra í málefnum fatlaðs fólk á velferðarsviði, í síma 525 8500 eða á netfangið palaei@gardabaer.is.
  • Þú getur líka haft samband við Þjónustuver Garðabæjar í síma 525 8500 eða á netfangið gardabaer@gardabaer.is.