Beint í efni

Rétt­inda­gæsla fatl­aðs fólks

Réttindagæslan aðstoðar fatlað fólk við að ná fram rétti sínum þegar réttindi þess eru ekki tryggð eða þau brotin.

Hvað gerir réttindagæslan?

Fatlað fólk getur leitað til réttindagæslunnar með allt sem varðar réttindi þess, fjármuni og önnur persónuleg mál. Réttindagæslan veitir þá leiðbeiningar eða aðstoð við að leita réttar síns eftir því sem við á.

Hafa samband

Þú hefur samband með því að hringja í síma 554 8100, milli kl. 9 og 16 alla virka daga. Utan þess tíma er hægt að lesa inn skilaboð.

Einnig er hægt að senda tölvupóst á netfangið rettindagaesla@mannrettindi.is.

Persónulegur talsmaður

Fatlað fólk sem á erfitt með að gæta réttar síns getur valið sér persónulegan talsmann. Hann hjálpar fólki að koma óskum sínum á framfæri.

Talsmaðurinn aðstoðar fólk við að gæta réttar síns og önnur persónuleg málefni. Dæmi um aðstoð:

  • meðferð heilbrigðisstarfsmanna
  • val á búsetu
  • atvinna og tómstundir
  • ráðstöfun peninga 

Talsmaður þarf að þekkja persónulegar þarfir og áhugamál þess sem hann aðstoðar. Starfið er ólaunað en útlagður kostnaður er endurgreiddur.