Fötluð börn og ungmenni
Garðabær veitir þjónustu til fatlaðra barna og ungmenna samkvæmt mati á stuðningsþörfum.
Stuðningsfjölskyldur
Stuðningsfjölskylda tekur fatlað barn í umsjá sína í skamman tíma til að létta álagi af fjölskyldu barnsins og veita því tilbreytingu.
Fötluð börn geta dvalið í skamman tíma hjá stuðningsfjölskyldu til að veita þeim tilbreytingu og létta álagi af fjölskyldum þeirra.
Stuðningsfjölskyldan er að jafnaði með barnið í tvo sólarhringa í mánuði. Dvöl hjá stuðningsfjölskyldu er samningsbundin til ákveðins tíma.
Sækja um stuðningsfjölskyldu
Þú sækir um stuðningsfjölskyldu í Þjónustugátt Garðabæjar. Þörf fyrir þjónustu er metin út frá aðstæðum barns og fjölskyldu. Við matið er horft til:
- Fötlunar barnsins og umönnunarþarfar.
- Félagslegra aðstæðna fjölskyldunnar.
Skammtímadvöl
Fjölskyldur fatlaðra barna geta fengið tímabundna dvöl fyrir börn og ungmenni með miklar umönnunarþarfir. Dvölin léttir álagi af fjölskyldum og veitir börnum og ungmennum tilbreytingu. Markmiðið er að þau geti búið sem lengst heima hjá foreldrum. Lengd dvalar fer eftir fötlun og aðstæðum hverju sinni.
Skammtímadvöl er í boði alla daga vikunnar, allt árið (fyrir utan hátíðisdaga).
Skammtímadvöl er í boði á eftirfarandi stöðum:
- Móaflöt 24 í Garðabæ fyrir fötluð börn, 6 til 17 ára. Forstöðumaður er Nína Björk Gísladóttir. Sími: 512 1570.
- Hnotuberg 19 í Hafnarfirði fyrir fötluð ungmenni og fullorðið fólk. Forstöðumaður Hrönn Harðardóttir. Sími: 565 2545.
- Hrauntunga 54 fyrir fatlað fólk til undirbúnings fyrir sjálfstæða búsetu. Forstöðumaður Sólrún Þrastardóttir. Sími: 441 9650.
Sækja um skammtímadvöl
Þú sækir um skammtímadvöl í Þjónustugátt Garðabæjar.
Umönnunargreiðslur
Forráðafólk fatlaðra barna geta sótt um umönnunargreiðslur hjá Tryggingastofnun. Þetta á við þegar umönnun er meiri en eðlilegt telst hjá jafnöldrum og kostnaður er mikill vegna:
- heilbrigðisþjónustu
- meðferðar
- þjálfunar
Velferðarsvið Garðabæjar veitir umsögn og tillögu að mati en Tryggingastofnun tekur endanlega ákvörðun og sér um greiðslur.
Við matið er horft til:
- Fötlunar barnsins og þjónustu utan heimilis.
- Umönnunarþyngdar og kostnaðar vegna fötlunar barnsins.
- Upplýsinga frá foreldrum og úr læknisvottorði.
Umönnunargreiðslur eru samþykktar til ákveðins tíma og endurmetnar reglulega.
Félagsmiðstöðvar fyrir fötluð börn og ungmenni

Sumarhraun
Sumarhraun er þjónusta sem er í boði á sumrin fyrir börn með sérþarfir í 1. til 7. bekk í Garðabæ til að auðvelda þeim að taka þátt í sumarnámskeiðum.

Garðahraun
Garðahraun er frístund og félagsmiðstöð fyrir börn í 5. til 10. bekk sem eru með fötlunargreiningar og miklar stuðningsþarfir.
Opið 13:00-16:30 í dagUngmennahraun
Ungmennahraun er sértæk frístundaþjónusta fyrir fötluð ungmenni á aldrinum 16 til 20 ára með miklar stuðningsþarfir.
OpnunartímiOpið eftir að skóladegi lýkur til klukkan 16:30.
Ráðgjöf fyrir fötluð börn og fjölskyldur
Velferðarsvið Garðabæjar býður fötluðum börnum og fjölskyldum þeirra upp á ýmsa þjónustu og ráðgjöf, til viðbótar við það sem fram kemur á vefnum.
Þú getur óskað eftir ráðgjöf um þjónustu við fötluð börn í Þjónustugáttinni.
Einnig er hægt að leita beint til sérfræðinga á velferðarsviði til að fá ráðgjöf og upplýsingar. Eftirfarandi aðilar taka við fyrirspurnum:
- Hjörtfríður Guðlaugsdóttir: Ráðgjafaþroskaþjálfi í málefnum fatlaðs fólks. Netfang: hjortfridurgu@gardabaer.is.
- Margrét Ósk Gunnarsdóttir: Ráðgjafaþroskaþjálfi í málefnum fatlaðs fólks. Netfang: margretosk@gardabaer.is.
Var efnið hjálplegt?
Hvað þarf að laga?
Vinsamlegast tilgreindu hvað mætti fara betur.