Garðþjónusta
Garðabær niðurgreiðir garðslátt hjá eldra fólki og fólki með örorku sem býr í einbýlis- eða raðhúsum. Markmiðið er að auðvelda íbúum að halda görðum sínum snyrtilegum yfir sumartímann.

Niðurgreiðsla á garðslætti
Eldra fólk getur fengið endurgreitt allt að 2.500 kr. fyrir hvern slátt og hirðingu.
- Afslátturinn er veittur að hámarki þrisvar sinnum á hverju sumri.
- Upphæðin er aldrei hærri en helmingur af heildarkostnaði hvers sláttar.
- Þú getur keypt þjónustuna af fyrirtæki með gilt starfsleyfi.
Athugaðu að afslátturinn gildir ekki fyrir íbúðir í fjölbýlishúsum. Þar er umhirða garðsins á ábyrgð húsfélagsins.
Hvernig færðu afsláttinn endurgreiddan?
Ferlið er einfalt:
1. Þú greiðir fyrirtækinu fullt gjald fyrir þjónustuna.
2. Þú kemur með reikninginn í Þjónustuver Garðabæjar.
3. Garðabær leggur endurgreiðsluna inn á bankareikninginn þinn.
Á reikningnum þarf þetta að koma fram:
- Nafn þitt, kennitala og heimilisfang.
- Bankareikningur fyrir endurgreiðslu.
- Dagsetning sláttar, fjöldi vinnustunda og heildarkostnaður.
Aðstoð Vinnuskólans við garðvinnu
Vinnuskóli Garðabæjar getur í sumum tilfellum aðstoðað við aðra garðvinnu en slátt frá byrjun júní.
Garðaþjónustan er hugsuð fyrir þá einstaklinga sem njóta umfangsmikillar stuðnings og stoðþjónustu Garðabæjar og aðrir heimilismenn ekki færir að sinna henni vegna aldurs eða örorku. Ekki er um garðslátt að ræða.
Ef þú vilt fá frekari upplýsingar eða biðja um aðstoð geturðu hringt í þjónustuver Garðabæjar í s. 525 8500.