Hrafnista Ísafold – hjúkrunarheimili
Á Hrafnistu Ísafold er sólarhrings hjúkrunar- og læknisþjónusta. Auk þess að vera hjúkrunarheimili er hægt að sækja um aðra þjónustuþætti eins og dagdvöl.

Heimilið
Hrafnista Ísafold er staðsett á Sjálandi í Garðabæ með útsýni yfir á Bessastaði, Gálgahraun, Gróttuvita og út á Faxaflóann. Við heimilið er stór skjólgóður garður sem nýttur er til útivistar á góðviðrisdögum. Heimilið er í göngufæri við strandlengjuna þar sem hægt er að nýta sér ýmsar skemmtilegar og aðgengilegar gönguleiðir.
Herbergin
- Öll herbergi eru einbýli.
- Hvert herbergi er um 35 fermetrar, sameiginlegt svefnherbergi og stofa auk baðherbergis og eldhúskróks með innréttingu, ísskáp og vaski.
- Í herbergjum er sjúkrarúm, náttborð, fataskápur á hjólum, gardínukappar, gardínur og rúllugluggatjöld.
- Í herbergjum er öryggiskallkerfi, tengingar fyrir síma, sjónvarp og tölvu.
- Heimilisfólk útvegar sjálft annan húsbúnað og gluggatjöld ef það óskar eftir að gera herbergi sitt enn heimilislegra.
Hugmyndafræði
Í hugmyndafræði heimilisins er rík áhersla lögð á sjálfsákvörðunarrétt og þátttöku íbúa. Tekið er það besta frá sjálfstæðri búsetu og sameinað öryggi hjúkrunarheimilis.
Sækja um rými á Hrafnistu Ísafold
Þau sem hyggja á flutning til Hrafnistu þurfa að sækja um færni- og heilsumat hjá Færni- og heilsumatsnefnd höfuðborgarsvæðisins. Færni- og heilsumat er faglegt einstaklingsbundið mat á þörfum einstaklinga fyrir varanlega hjúkrun og búsetu á hjúkrunarheimili.
Þjónusta á Ísafold
Sjúkraþjálfun Ísafoldar
Á Ísafold er boðið upp á sjúkraþjálfun. Þar starfa bæði sjúkraþjálfarar sem þjónusta almenning og sjúkraþjálfarar á vegum Hrafnistu Ísafold, sem þjónusta heimilisfólk á hjúkrunarheimilinu.
- Sími fyrir almenning: 512 1558 / 863 5453
- Sími fyrir heimilisfólk Ísafoldar: 585 3000
- Opið: 9:00–16:00
Fótaaðgerðastofa Auðbjargar
Fótaaðgerðarstofa Auðbjargar er opin almenningi. Sérstakur afsláttur er veittur eldri borgurum og öryrkjum.
- Sími: 535 2275
- Netfang: audbjorgfota@gmail.com
Hársnyrtistofan Ísafold
Hársnyrtistofan Ísafold er opin almenningi. Sérstakur afsláttur er veittur eldri borgurum og öryrkjum.
- Sími: 535 2280 / 893 5566
- Netfang: inga.isafold@gmail.com
- Opið: 9:30–16:00
Dagdvöl á Ísafold
Í dagdvöl Ísafoldar er fjölbreytt framboð af virkni í fallegu umhverfi sem býður upp á hlýlegan heimilisbrag. Áhersla er lögð á samfélagslega þátttöku, skynjun og áhrif umhverfis og upplifunar á velferð og vellíðan.
Var efnið hjálplegt?
Hvað þarf að laga?
Vinsamlegast tilgreindu hvað mætti fara betur.