Félagsstarf og hreyfing eldra fólks
Garðabær býður upp á fjölbreytt félagsstarf og námskeið fyrir eldra fólk í bænum. Markmiðið er að bjóða upp á skemmtilega samveru og heilsueflingu þar sem allir finna eitthvað við sitt hæfi.

Félagsstarf eldri borgara
Félagsstarfið fer fram á þremur stöðum í bænum í Jónshúsi, Lambamýri og Smiðjunni. Í Jónshúsi og Lambamýri er einnig félagsstarf á vegum Félags eldri borgara í Garðabæ og Félags eldri borgara á Álftanesi.
Fjölbreytt dagskrá
Eldra fólk getur tekið þátt í tómstundanámskeiðum, vinnustofum og opnum húsum. Auk þess halda hópar sjálfboðaliða úti fjölbreyttu félagsstarfi í húsnæði bæjarins og víðar.
Upplýsingar um félagsstarf má finna á eftirfarandi stöðum:
- Dagskrá félagsstarfs vorönn 2026
- Facebook-síða Jónshúss
- Facebook-síða Félags eldri borgara á Álftanesi
- Facebook-síða Félags eldri borgara í Garðabæ
- Vikudagskráin og Morgunblaðið
Fyrir nánari upplýsingar um félagsstarf og íþróttir eldra fólks getur þú haft samband við Sólveigu Valgeirsdóttur, forstöðumann félagsmiðstöðva eldra fólks í Garðabæ.
- Netfang: solveigva@gardabaer.is
- Sími: 512 1501
Matur og kaffi í Jónshúsi
Í Jónshúsi er boðið upp á góðar veitingar og samveru:
- Hádegismatur: Þú getur pantað heitan mat frá Matborðinu. Panta þarf matinn með dags fyrirvara í síma 512 1501. Það er hægt að borða á staðnum eða taka matinn með sér heim.
- Kaffitería: Kaffiveitingar eru seldar alla virka daga, en boðið er upp á ókeypis kaffi fyrir gesti allan daginn.
Félög eldra fólks
Tvö öflug félög eldri borgara starfa í Garðabæ og bjóða upp á eigin dagskrá.
Félag eldri borgara í Garðabæ (FEBG)
Skrifstofa FEBG er í Jónshúsi, Strikinu 6, 210 Garðabæ.
Félag eldri borgara á Álftanesi (FEBÁ)
Skrifstofa FEBÁ er í Lambamýri, Lambamýri 1 , 225 Garðabæ.
Hreyfing og íþróttir
Garðabær tekur þátt í Björtum lífstíl, samstarfsverkefni Landssambands eldri borgara (LEB) og Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands (ÍSÍ). Verkefnið leggur áherslu á heilsueflingu og hreyfingu fyrir fólk sem er 60 ára og eldra. Sjá hreyfingu í boði á landinu.
Fjölbreytt tækifæri til hreyfingar eru í boði í bænum
Opið 06:30-22:00 í dagÁsgarðslaug
25 metra laug, heitir pottar, gufa og líkamsrækt.
OpnunartímiVirka daga: 06:30 til 22:00
Helgar: 08:00 til 18:00
Opið 06:30-22:00 í dagÁlftaneslaug
Úti- og innilaug, heitir pottar, heilsurækt fyrir eldra fólk og góð aðstaða fyrir hreyfihamlaða
OpnunartímiVirka daga: 06:30 til 22:00
Helgar: 09:00 til 18:00
Opið 08:00-22:00 í dagMiðgarður
400 metra löng göngubraut, opin allan ársins hring.
OpnunartímiVirka daga: 08:00 til 22:00
Laugardaga: 09:00 til 18:00
Sunnudaga: 10:00 til 18:00
Opið 08:00-22:00 í dagÍþróttamiðstöðin Sjálandi
Íþróttasalur og sundlaug.
OpnunartímiMán. til fimmtudaga 08:00 til 22:00
Föstudaga: 08:00 til 19:00
Laugardaga: 09:00 til 13:00
Sunnudaga: Lokað
Námskeið og samstarfsaðilar
Eldra fólk getur sótt ýmis námskeið og hreyfitíma hjá samstarfsaðilum Garðabæjar.
Klifið
Klifið býður upp á fjölbreytt námskeið og hreyfitíma, þar á meðal Aqua Zumba, Aqua Yogalates og Aqua Tabata.
- Staðsetning: Garðatorg 7, 210 Garðabæ
- Sími: 565 0600
- Netfang: klifid@klifid.is
Gfit
Heilsuefling og þjálfun sem styður þol, styrk og liðleika, með áherslu á að hver og einn geti æft á sínum hraða.
- Heimilisfang: Kirkjulundur 19, 210 Garðabæ
- Sími: 698 0697
- Netfang: gfit@gfit.is
Tilveran heilsusetur
Heilsustúdíó sem býður meðal annars upp á jóga fyrir eldra fólk, með áherslu á jafnvægi huga og líkama.
- Staðsetning: Garðatorg 3, 210 Garðabæ
- Netfang: tilveran@tilveranstudio.is
- Sími: 863 2290
Var efnið hjálplegt?
Hvað þarf að laga?
Vinsamlegast tilgreindu hvað mætti fara betur.

