Beint í efni

Fé­lags­leg þjón­usta

Allir íbúar Garðabæjar eiga að geta búið við fjárhagslegt og félagslegt öryggi.

Félagsleg ráðgjöf

Markmiðið með félagslegri ráðgjöf er að styðja fólk til sjálfshjálpar svo hver og einn geti notið sín sem best. Allir íbúar Garðabæjar, 18 ára og eldri, geta fengið ráðgjöf sér að kostnaðarlausu.

Fjárhagsaðstoð

Íbúar Garðabæjar, 18 ára og eldri, sem eiga í tímabundnum erfiðleikum með framfærslu geta sótt um fjárhagsaðstoð. Leiðarljósið er hjálp til sjálfshjálpar.

Húsnæðismál

Félagslegar leiguíbúðir eru fyrir fjölskyldur og einstaklinga sem þarf sérstaka aðstoð við að sjá sér fyrir húsnæði.