Beint í efni

Drottn­ing glæp­a­sagn­anna Ag­atha Christ­ie með Krist­ínu Lindu Jóns­dótt­ur

Viðburðir

Bókasafn Garðabæjar

fimmtudagur, 1. október 2026 kl. 18:00 - 19:00

Kristín Linda sálfræðingur og fararstjóri fer með okkur í ferðalag um ævi, ritverk og leyndardóma drottningu glæpasagnanna – Agöthu Christie.

Kristín Linda sálfræðingur og fararstjóri fer með okkur í ferðalag um ævi, ritverk og leyndardóma drottningu glæpasagnanna – Agöthu Christie.

Kristín Linda hefur kynnt sér vel Agöthu Christie og verk hennar. Einnig hefur hún leitt hópa í fræðsluferðir í fótspor hennar á Suður-Englandi. Verið velkomin á lifandi og skemmtilega frásögn með myndum.

Breski rithöfundurinn Agatha Christie (1890-1976) var einstaklega afkastamikil. Hún skrifaði 66 glæpasögur, 14 smásagnasöfn, 19 leikrit og sex skáldsögur. Áætlað er að bækur hennar hafi selst í yfir tveim milljöðrum eintaka.

Músagildran, hennar þekktasta leikrit, heldur heimsmetinu fyrir lengstu samfelldu sýningaröð í heimi og er enn á fjölunum í London.

Þessi fyrirlestur er hluti af Löngum fimmtudögum og eins og ávallt góður félagsskapur og heitt á könnunni.