Foreldramorgunn: fræðsla um matvendni barna
Viðburðir
Bókasafn Garðabæjar
fimmtudagur, 22. október 2026 kl. 10:30 - 11:30

Sigrún Þorsteinsdóttir verður með fróðlegt erindi um matvendni barna og hvað er til ráða.
Sigrún Þorsteinsdóttir verður með fróðlegt erindi um matvendni barna og hvað er til ráða. Einstakt tækifæri til þess að fræðast og fá góð ráð hjá okkar helsta sérfræðingi. Sigrún er klínískur barnasálfræðingur með doktorsgráðu í heilsueflingu og starfar í offituteymi Barnaspítalans ásamt því að sinna rannsóknum á matvendni barna við Háskóla Íslands í samstarfi við Önnu Sigríði Ólafsdóttur prófessor í næringarfræði. Þær hafa sérstaklega sinnt rannsóknum á matvendni barna með taugaþroskaraskanir (m.a. ADHD og einhverfu).