Foreldranámskeið
Viðburðir
Sveinatunga
þriðjudagur, 13. október 2026 kl. 19:30 - 22:00

Fræðslu- og frístundasvið og velferðarsvið Garðabæjar bjóða upp á foreldranámskeið fyrir þau sem vilja auka færni sína til að takast á við uppeldishlutverkið.
Á námskeiðinu munu reynslumiklir uppeldisráðgjafar gefa gagnleg ráð og kenna aðferðir til að draga úr vægum hegðunarvanda, auka samstarfsvilja og ýta undir færni barnsins til að takast á við daglegt líf. Boðið verður upp á notalega kvöldstund þar sem foreldrum gefst tækifæri til þess að auka færni sína og læra nýjar uppeldisaðferðir.