Foreldranámskeið fyrir foreldra 3-9 ára barna
Viðburðir
Sveinatunga
þriðjudagur, 27. október 2026 kl. 19:45 - 22:00

Fræðslu- og frístundasvið og Velferðarsvið Garðabæjar bjóða upp á foreldranámskeið fyrir þau sem vilja auka færni sína til að takast á við uppeldishlutverkið.
Á námskeiðinu munu reynslumiklir uppeldisráðgjafar gefa foreldrum barna á aldrinum 3-9 ára gagnleg ráð með áherslu á virk samskipti, leiðir til að ýta undir æskilega hegðun barnanna, efla færni og auka samstarfvilja þeirra. 💚 Boðið verður upp á notalega kvöldstund þar sem foreldrum gefst tækifæri til þess að auka færni sína og læra uppbyggilegar uppeldisaðferðir.