Forvarnarvikan í Garðabæ 4.–11. nóvember
Viðburðir
Garðabær

Forvarnarvikan í Garðabæ er haldin 4.–11. nóvember og yfirskrift vikunnar í ár er „Vinur, leikur, lærdómur“.
Stofnanir Garðabæjar taka þátt í forvarnarvikunni með viðburðum í sínu innra starfi.
Í þessari viku verður lögð sérstök áhersla á að brýna fyrir nemendum mikilvægi góðrar skólasóknar því góð ástundun er lykilatriði þegar kemur að vellíðan, félagslífi og farsæld barna innan sem utan skóla.