Fyrsta skóflustungan að nýjum búsetukjarna
Viðburðir
Hnoðraholt

Fyrsta skóflustungan að nýjum búsetukjarna fyrir fatlað fólk verður tekin föstudaginn 17. apríl klukkan 14:00.
Búsetukjarninn verður við Haustbraut 2 í Hnoðraholti og er verkefni sem styður við markmið um sjálfstæða búsetu og lífsgæði í heimabyggð.
Um sjö íbúða kjarna er að ræða, með sérinngang í hverja íbúð. Auk þess verður góð aðstaða fyrir starfsfólk í húsinu.
