Hreyfispjöld : Fræðsla og léttar æfingar á löngum fimmtudegi
Bókasafn Garðabæjar
fimmtudagur, 8. október 2026 kl. 18:00 - 19:00

Anna Björg og Gerður íþrótta & heilsufræðingar og höfundar Hreyfispjaldanna, deila með okkur einföldum og hagnýtum hugmyndum um hvernig við getum viðhaldið styrk, liðleika og jafnvægi alla ævi.
Hreyfing skiptir máli – og það þarf ekki að vera flókið að koma henni inn í daglegt líf.
Anna Björg og Gerður íþrótta & heilsufræðingar og höfundar Hreyfispjaldanna, deila með okkur einföldum og hagnýtum hugmyndum um hvernig við getum viðhaldið styrk, liðleika og jafnvægi alla ævi.
Einnig munum við hreyfa okkur saman og prófa fjölbreyttar æfingar með Hreyfispjöldunum – á léttan og skemmtilegan hátt þar sem öll geta tekið þátt.
Gott er að koma í fötum sem þægilegt er að hreyfa sig í.
Þessi viðburður er hluti af Löngum fimmtudögum og eins og ávallt góður félagsskapur og heitt á könnunni.