Beint í efni

Íbúa­fund­ir: Hvað er að frétta í Garða­bæ?

Viðburðir

Garðabær

miðvikudagur, 14. október 2026 kl. 19:30

þriðjudagur, 20. október 2026 kl. 19:30

miðvikudagur, 28. október 2026 kl. 19:30

Árlegir íbúafundir í Garðabæ verða haldnir í október.

Þrír íbúafundir sem haldnir eru undir yfirskriftinni Hvað er að frétta í Garðabæ? eru á dagskrá í október.

Þar mun Almar Guðmundsson bæjarstjóri Garðabæjar ásamt sviðsstjórum fara yfir það helsta sem er í gangi í bænum um þessar mundir og sitja fyrir svörum.

Fundirnir eru skipulagðir út frá hverfum bæjarins en athygli er vakin á því að hverfaskiptingin er aðeins leiðbeinandi og eru fundir opnir öllum og íbúar geta mætt á þann fund sem hentar best.

Dagsetningar:

  • Fyrsti fundur verður haldinn í Álftanesskóla 14. október, klukkan 19:30.
  • Annar fundur fer fram í Urriðaholtsskóla 20. október, klukkan 19.30.
  • Þriðji fundur verður haldinn 28. október klukkan 19.30 í Miðgarði, 2. hæð.

Skoða á Facebook