Beint í efni

Jóla­bóka­spjall barn­anna

Viðburðir

Bókasafn Garðabæjar, Garðatorgi 7

laugardagur, 21. nóvember 2026 kl. 13:00 - 14:00

Höfundar lesa upp úr jólabókum og Stúfur með sögustund

Í ár verður sannkölluð jólastemning á bókasafninu þar sem lesið verður upp úr bráðskemmtilegum bókum þar sem jólin eru í aðalhlutverki. Embla Bachmann les upp úr bók sinni Farðu um jólin og Kristín Björg Sigurvinsdóttir les upp úr bókinni Hvað fá jólasveinar eiginlega í jólagjöf? Einnig mætir Stúfur á svæðið og heldur sögustund eins og honum einum er lagið. Hvað gæti verið jólalegra?

Dagskrá

  • Kl. 13:00 – Embla Bachmann 📖 Farðu um jólin Bókin fjallar um erkióvinina Ísabellu og Lúkas sem lenda í þeirri óvæntu uppákomu að mamma hennar og pabbi hans byrja að deita rétt fyrir jól. Þau hafa aðeins örfáa daga til að koma í veg fyrir sambandið svo þau þurfi ekki að verja jólunum saman. En mun þeim takast það? Bókin er sett upp eins og jóladagatal með 24 köflum sem spanna tímabilið frá 1. til 24. desember.
  • Kl. 13:20 – Kristín Björg Sigurvinsdóttir 📖 Hvað fá jólasveinar eiginlega í jólagjöf? Bókin segir frá ævintýri Agnesar og jólaálfsins Jólentínusar sem leggur af stað í leit að íslensku jólasveinunum til að færa þeim jólagjafir. En það er einn hængur á, hann finnur þá hvergi! Agnes ákveður að hjálpa honum og saman leggja þau af stað í æsispennandi ferðalag um Ísland þar sem þau hitta ýmsar vættir, sumar háskalegri en aðrar. En stærsta spurningin er auðvitað: Hvað fá jólasveinar eiginlega í jólagjöf?
  • Kl. 13:40 – Stúfur 🎅
    Stúfur mætir á svæðið og heldur sögustund eins og honum einum er lagið.
    Á dagskránni eru klassískar íslenskar jólasögur og létt jólasprell frá þessum minnsta bróður jólasveinanna.
    🍊🍪 Boðið verður uppá mandarínur og piparkökur fyrir börnin. Frítt inn og öll hjartanlega velkomin! ✨🎄📚

English

Join us for a festive afternoon of stories and holiday fun at the library! The program is all in Icelandic. Authors Embla Bachmann and Kristín Björg Sigurvinsdóttir will read from their delightful Christmas books, and a special guest, Stúfur, will stop by for a storytelling session filled with classic Icelandic Christmas tales and holiday cheer.

Programme

  • 1:00 PM – Embla Bachmann: Farðu um jólin
  • 1:20 PM – Kristín Björg Sigurvinsdóttir: Hvað fá jólasveinar eiginlega í jólagjöf?
  • 1:40 PM – Storytime with Stúfur, the smallest of the Yule Lads.

🍊🍪 Mandarins and gingerbread cookies will be served.

Free admission and everyone is welcome! ✨