Litla hryllingsbúðin
Garðaskóli
kl. 19:00
kl. 13:00
kl. 18:00
kl. 20:00
kl. 20:00
kl. 20:00

Ungmenni í Garðalundi eru um þessar mundir að leggja lokahönd á uppfærslu á hinum vinsæla söngleik Litla hryllingsbúðin (Little Shop of Horrors), sem hefur notið mikilla vinsælda um allan heim.
Ungmenni í Garðalundi eru um þessar mundir að leggja lokahönd á uppfærslu á hinum vinsæla söngleik Litla hryllingsbúðin (Little Shop of Horrors), sem hefur notið mikilla vinsælda um allan heim.
Verkefnið er hluti af starfi Garðalundar þar sem lögð er áhersla á þátttöku, ábyrgð og skapandi tjáningu ungmenna. Þátttakendur hafa unnið saman að uppsetningu sýningarinnar frá grunni. Í ferlinu hafa þau fengið tækifæri til að efla sjálfstraust sitt, samvinnu og frumkvæði. Söngleikurinn segir frá Seymour, feimnum starfsmanni í blómabúð, sem finnur dularfulla plöntu sem reynist hafa óvænta og óhugnanlega eiginleika. Sýningin er bæði fyndin og spennandi, með grípandi tónlist og eftirminnilegum persónum. Sýningartímar og upplýsingar Frumsýning: Föstudagur 24. apríl kl. 19:00 2. sýning: Laugardagur 25. apríl kl. 13:00 3. sýning: Laugardagur 25. apríl kl. 18:00 4. sýning: Mánudagur 27. apríl kl. 20:00 5. sýning: Þriðjudagur 28. apríl kl. 20:00 Lokasýning: Miðvikudagur 29. apríl kl. 20:00 Staðsetning: Garðaskóli Miðaverð: 2.500 kr Miðasala fer fram á Abler: https://www.abler.io/shop/gardalundur/1 Einnig er hægt að panta miða í síma: 820 8571