Námskeið í gerð Bóndarósar úr pappír - Hönnunarsafn Íslands
Hönnunarsafn Íslands
fimmtudagur, 5. nóvember 2026 kl. 14:00 - 17:00
föstudagur, 6. nóvember 2026 kl. 14:00 - 17:00

Tveggja daga pappírsblóma upplifun í Hönnunarsafni Íslands
Vertu með listakonunni Catherine Oxley á notalegu námskeiði í Hönnunarsafni Íslands í Garðabæ þar sem við munum búa til gullfallega bóndarós úr pappír.
Verð 25.000 kr.
Það sem þú munt skapa Á tveimur dögum munt þú hanna og skapa þína eigin stóru bóndarós (e. Top Brass Peony) allt frá fyrsta krónublaðinu til hinnar glæsilegu miðju. Þú munt læra:
- Að móta og skapa raunsæja áferð á krónublöð bóndarósar
- Aðferðir við að búa til hina sérstöku fylltu miðju („bomb“-gerð) sem einkennir „Top Brass“ afbrigði bóndarósa
- Að blanda liti til að ná fram litapallettu sem samanstendur af fílabeinshvítum, fölbleikum, bleikum og gullgulum tónum
- Að setja blómið saman, raða blöðunum og ganga frá því svo úr verði þétt og lifandi blóm
- Að ganga frá blóminu svo hægt er að sýna það heima, gefa sem það gjöf eða er upphaf að stærri blómainnsetningu
Þú ferð heim með fullbúið listaverk – og þá færni sem þarf til að halda áfram að skapa.
Fyrir byrjendur Námskeiðið er opið öllum, er hvetjandi og sérstaklega sniðið að byrjendum. Engin fyrri reynsla af pappírsblómagerð, föndri eða listsköpun er nauðsynleg. Ég leiði þig í gegnum hvert skref fyrir sig með skýrri sýnikennslu, stuðningi og nægum tíma til að gera tilraunir.
Komdu ein/n/tt, taktu vin með eða gefðu einhverjum sem elskar blóm, hönnun eða skapandi upplifanir þetta námskeið í gjöf.
Takmarkaður fjöldi plássa er í boði til að tryggja persónulega upplifun og góða leiðsögn. Sjá nánar hér á vef Hönnunarsafns Íslands um skráningu.
Athugið: Allur efniviður eru innifalin, en við biðjum ykkur vinsamlegast að taka með ykkur beitt skæri á vinnustofuna.