Beint í efni

Pet­it Pli - Opn­un og er­indi

Viðburðir

Hönnunarsafn Íslands

sunnudagur, 4. október 2026 kl. 12:00

Hönnunarsafn Íslands

Sýningin opnar kl. 15.00 og í kjölfarið, kl. 16.00, heldur Ryan erindi. Erindið er flutt á ensku.

Petit Pli er þekkt fyrir fatnað sem flettist út líkt og origami og getur fylgt börnum eftir því sem þau stækka.

Fyrirtækið var stofnað í London af Ryan Mario Yasin, sem lauk námi frá Imperial College London í flugvélaverkfræði og Royal College of Art í nýsköpun og hönnun. Hugmyndin kviknaði út frá rannsóknum Ryans á samanbrjótanlegum formum fyrir smágervitungl, en á sama tíma fylgdist hann með nýfæddum frænda vaxa hratt upp úr fötunum sínum.

Hönnunin er einkaleyfisvarin og hefur meðal annars verið valin ein af Bestu uppfinningum ársins hjá TIME og World Changing Ideas hjá Fast Company, auk þess að hafa hlotið fjölda alþjóðlegra hönnunar- og nýsköpunarverðlauna.

Þegar við komumst að því að Ryan heitir Reynir í íslenska vegabréfinu sínu vakti það vissulega forvitni.